Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 19.7.–9.8.2025

2

Í vinnslu

  • 10.8.2025–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Fylgiskjöl

Mál nr. S-137/2025

Birt: 19.7.2025

Fjöldi umsagna: 3

Áform um lagasetningu

Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Frumvarp til laga um Netöryggisstofnun Evrópu (ENISA) og netöryggisvottunarkerfi upplýsinga- og fjarskiptatækni vöru, þjónustu og ferla

Málsefni

Innviðaráðuneytið leggur inn til umsagnar áform um frumvarp til laga um Netöryggisstofnun Evrópu (ENISA) og netöryggisvottunarkerfi upplýsinga- og fjarskiptatækni vöru, þjónustu og ferla.

Nánari upplýsingar

Með ákvörðun sameiningulegu EES- nefndarinnar nr. 22/2023 frá 3. febrúar 2023 um breytingu á XI. viðauka ( Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingsamfélagið) og bókun 37 (sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr.) við EES- samninginn var reglugerð Evrópusambandsins nr. 2019/881 felld inn í EES- samninginn.

Reglugerð nr. 2019/881 varðar Netöryggisstofnun Evrópusambandsins (ENISA), um netöryggisvottun upplýsinga- og fjarskiptatækni og um niðurfellingu reglugerðar (ESB) nr. 526/2013 (gerð um netöryggi) – (e. Cybersecurity Act).

Tilefni áforma þessara er að innleiða framangreinda reglugerð inn í íslenskan rétt.

Meginmarkmið reglugerðar ESB nr. 2019/881 er annars vegar að tryggja Netöryggisstofnun Evrópusambandsins, sem í daglegu tali er kölluð ENISA, varanlegan starfsgrundvöll og efla starfsemi hennar á sviði netöryggis. Hins vegar er markmið reglugerðarinnar að koma á fót samræmdu evrópsku vottunarferli fyrir vörur, þjónustu og ferla á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni (e. Information and Communication Technology – ICT), til þess m.a. að vernda aðgengi, réttleika eða leynd gagna eða tendrar virkni eða þjónustu sem boðið er upp á með slíkum vörum, þjónustu eða ferlum.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (6)

Umsjónaraðili

skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála

irn@irn.is