Til umsagnar
19.7.–16.8.2025
Í vinnslu
17.8.2025–6.4.2026
Samráði lokið
7.4.2026
Mál nr. S-136/2025
Birt: 19.7.2025
Fjöldi umsagna: 5
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Fimm umsagnir bárust en við frumvarpið sjálft bárust 194 umsagnir. Sjá umfjöllum um umsagnir í kafla 5 við frumvarpið í link hér að neðan.
Innviðaráðuneytið leggur inn til umsagnar áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti og lög um Fjarskiptastofu.Frestur framlengdur um viku til 16. ágúst. nk.
Breytingar þær sem fyrirhugaðar eru snúa fyrst og fremst að vernd fjarskiptatrengja í sjó, fjarskiptatíðnir fyrir neyðar- og öryggisfjarskipti og vernd persónuupplýsinga. Aðrar breytingar á fjarskiptalögum má telja til lagfæringa vegna samfélagsbreytinga og til að auka skýrleika laganna.
Ísland hefur þegar innleitt viðeigandi ákvörðun frá Evrópsku fjarskiptaráðstefnunni (ECC), nánar tiltekið ECC/DEC(22)06 og fylgir einnig ECC/REC/22)01, sem skilgreina tíðnisviðið 20,5-43,5 GHz fyrir Mobile/Ficed Communication Networks (MFCN). Ísland þarf að innleiða framkvæmdaákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1983 fyrir úthlutun á tíðni 40,5-43,5 GHz fyrir jarðbundin fjarskiptakerfi sem veita þrálausar breiðbands fjarskiptaþjónustur í Evrópusambandinu. Því þarf að breyta lögum um Fjarskiptastofnun og bæta nýrri gjaldtökuheimild inn í lögin til innheimtu auðlindagjalds fyrir úthlutun tiltekinna tíðnisviða, sem flest liggja hátt í tíðnirófinu.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála
irn@irn.is