Til umsagnar
16.7.–13.8.2025
Í vinnslu
14.8.2025–11.5.2026
Samráði lokið
12.5.2026
Mál nr. S-131/2025
Birt: 16.7.2025
Fjöldi umsagna: 3
Drög að frumvarpi til laga
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 157. löggjafarþingi. Sjá lög nr. 92/2025.
Innviðaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022 (áhafnir björgunarskipa)
Með frumvarpi um breytingu á lögum um áhafnir skipa nr. 82/2022 er ætlunin að bregðast við vanda Slysavarnafélagsins Landsbjargar við mönnun nýrra björgunarskipa.
Áform um lagasetningu voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda 11. apríl – 2. maí sl. og bárust 6 umsagnir. Þá voru áformin kynnt á fundi fagráðs um siglingar þann 29. apríl sl.
Lagt var mat á allar athugasemdir í umsögnum sem bárust. Námsskrá og listi yfir kennara verður háð samþykki Samgöngustofu. Þá verður námið háð eftirliti stofnunarinnar, líkt og gildir um annað nám í siglingatengdum greinum. Er því ekki talin ástæða til að ætla að gæði náms skv. reglugerð sem sett verður í samræmi við fyrirhugaða breytingu á lögum verði minni en gæði náms í öðrum fagskólum. Í greinargerð með drögum að frumvarpi er hvatt til samráðs við fagskóla við myndun námskrár.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa samgangna
katrin.palsdottir@irn.is