Til umsagnar
11.–31.7.2025
Í vinnslu
1.8.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-122/2025
Birt: 11.7.2025
Fjöldi umsagna: 4
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála
Áform um rafræna og stafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum
Dómsmálaráðuneytið hefur haft til skoðunar málsmeðferðarreglur erfðalaga, laga um aðför, laga um skipti á dánarbúum o.fl. og laga um nauðungarsölu, með það að markmiði að hverfa frá úreltum pappírsferlum og bjóða almenningi upp á rafræna og stafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum. Málsmeðferðarreglur laganna hafa í meginatriðum haldist óbreyttar frá gildistöku laganna og mæta því illa þörfum og væntingum almennings fyrir skilvirka og einfalda málsmeðferð fyrir sýslumönnum og dómstólum.
Með lögum nr. 32/2020, 121/2020, 136/2021 og 98/2023 voru gerðar breytingar m.a. á erfðalögum nr. 8/1962 og lögum nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl., sem miðuðu að því að styðja við umbætur á þjónustu og málsmeðferð við skipti dánarbúa með stafrænni og rafrænni málsmeðferð. Lagaheimildirnar sem er að finna í ákvæði til bráðabirgða í erfðalögum og 158. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl. hafa reynst vel í framkvæmd og ýtt undir nauðsynlegar framfarir í stafrænni þjónustu við skipti á dánarbúum. Nýsköpunarverðlaun sem sýslumannsembættin hlutu árið 2024 fyrir brautryðjendastarf við sjálfvirknivæðingu opinberrar þjónustu, sérstaklega stafræna málsmeðferð dánarbúa, er til marks um góða reynslu af framangreindum heimildum. Þar sem lagaheimildirnar falla úr gildi 1. janúar 2026, er mikilvægt að lögfesta varanlegar heimildir fyrir rafræna og stafræna málsmeðferð til að koma í veg fyrir rof á þróunarvinnu og innleiðingu stafrænna lausna í málsmeðferðinni. Samskonar bráðabirgðaheimildir er ekki að finna í lögum um aðför og lögum um nauðungarsölu og því er málsmeðferðin á þeim sviðum komin vel til ára sinna og enn háð pappírsferlum. Með frumvarpinu er ætlunin að stemma stigum við þeirri stöðu og nýta þá góðu reynslu sem fengist hefur af stafrænni málsmeðferð við skipti á dánarbúum og framþróun sem hefur orðið á öðrum réttarsviðum. Ber þar helst að nefna lög um breytingu á þinglýsingalögum, lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu og lög um aukatekjur ríkissjóðs (rafrænar þinglýsingar), lög um rafræna auðkenningu og traustþjónustu fyrir rafræn viðskipti, lög um stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda og lög um breytingu m.a. á lögum um meðferð einkamála (miðlun og form gagna, fjarþinghöld, birting ákæra o.fl.).
Tilefni lagabreytinganna er að styðja við eftirfarandi markmið rafrænnar og stafrænnar málsmeðferðar. Í fyrsta lagi markmið um bætta þjónustu við almenning og einfaldari stjórnsýslu, enda miðar frumvarpið að því að fjölga þjónustuleiðum með framboði rafrænnar og stafrænnar málsmeðferðar til viðbótar við hefðbundna málsmeðferð. Í öðru lagi aukin skilvirkni með hraðari afgreiðslu mála og að auðvelda almenningi að senda inn umsóknir og gögn, sérstaklega í tengslum við skipti á dánarbúum. Í þriðja lagi aukin hagræðing og umhverfisvernd þar sem rafræn og stafræn málsmeðferð leiðir til lægri kostnaðar við málsmeðferðina og gagnamiðlun auk minni pappírsnotkunar. Í fjórða lagi bætt réttaröryggi með öruggari birtingu gagna og aðgengi að þeim.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa réttinda einstaklinga og skrifstofa réttarfars og stjórnsýslu
dmr@dmr.is