Til umsagnar
10.–31.7.2025
Í vinnslu
1.8.2025–6.4.2026
Samráði lokið
7.4.2026
Mál nr. S-117/2025
Birt: 10.7.2025
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Sveitarfélög og byggðamál
Ein umsögn barst vegna málsins. Málið var tekið af dagskrá vegna fjölda mála. Líklegt er að málið verði sett aftur á dagskrá á næsta löggjafarþingi. Ráðuneytið mun taka athugasemdina til skoðunar.
Innviðaráðuneytið leggur fram áform um breytingar á lögum um Byggðastofnun nr. 106/1999 til umsagnar og almennra athugasemda.
Lög um Byggðastofnun eru frá 1999 og þarfnast lagfæringa við. Bæta þarf orðalag laganna sem er oft á tíðum ekki í samræmi við breytta tíma. Þannig eru atvinnuþróunarfélög ekki lengur til, heldur landshlutasamtök sveitarfélaga svo dæmi sé tekið. Þá vantar persónuverndarákvæði inn í lögin ásamt ákvæði um EIF (European Investment Fund) og sambærilega sjóði. Byggðastofnun er lánastofnun og ber að hafa stjórn og því verður ekki lagt til að stjórnin verði lögð niður en skoðað verður hvort rétt sé að fækka stjórnarmönnum. Þá verður lagt til að skerpt verði á sjálfstæði stofnunarinnar í póstmálum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
skrifstofa sveitarfélaga, stafrænna innviða og byggðamála
irn@irn.is