Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 10.7.–7.8.2025

2

Í vinnslu

  • 8.8.2025–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-116/2025

Birt: 10.7.2025

Fjöldi umsagna: 4

Áform um lagasetningu

Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Áform um endurskoðun laga um vitamál nr. 132/1999

Málsefni

Með frumvarpi til laga um vitamál er ætlunin að bregðast við ákalli um heildarendurskoðun laga um vitamál nr. 132/1999.

Nánari upplýsingar

Með fyrirhuguðu frumvarpi er stefnt að því að uppfæra lögin með það að markmiði að auka öryggi siglinga og aðlaga þau að breyttu umhverfi. Stefnt er að því að skýra og einfalda regluverk án þess að draga úr kröfum varðandi öryggi.

Eitt af markmiðum endurskoðunar laganna er að skýra hlutverk Samgöngustofu og Vegagerðarinnar sem eru framkvæmdaraðilar samkvæmt lögunum, en stofnanirnar hafa kallað eftir slíkri skýringu. Þá er einnig stefnt að því að skýra ábyrgð og framkvæmd áhættumats siglinga, til samræmis við alþjóðaskuldbindingar. Tryggja þarf að siglingaöryggi og önnur nýting á hafsvæði eigi farsæla samleið við stendur Íslands.

Meðal annarra breytinga sem stefnt er að er uppfærsla ákvæða er varða tilkynningar til sjófarenda, til samræmis við gildandi framkvæmd. Endurskoðuð verða ákvæði um farartálma í sjó með það að markmiði að tryggja öryggi siglinga. Þá er áformað að setja í lög ákvæði sem tryggir heimild opinberra aðila til að kveða á um skipulag umferðar- og leiðsögukerfa á sjó, ásamt heimild til að takmarka umferð tiltekinna tegunda skipa á ákveðnum svæðum og notkun tiltekinna veiðafæra þar sem þau geta valdið skemmdum.

Þá stendur til að tryggja að stjórnvöld sem bera ábyrgð á siglingum við strendur landsins hafi aðkomu að gerð strandsvæðisskipulags skv. lögum um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88/2018.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa samgangna

katrin.palsdottir@irn.is