Til umsagnar
6.–30.5.2025
Í vinnslu
31.5.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-85/2025
Birt: 6.5.2025
Fjöldi umsagna: 9
Stöðumat og valkostir
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Stöðumat og valkostir um stefnu ríkisins í mannauðsmálum til að auka gagnsæi og möguleika almennings og hagsmunaaðila á þátttöku í stefnumótun.
Fjármála- og efnahagsráðherra kynnir stöðumat og valkosti um stefnu ríkisins í mannauðsmálum til að auka gagnsæi og möguleika almennings og hagsmunaaðila á þátttöku í stefnumótun. Markmið um innleiðingu stefnu ríkisins í mannauðsmálum er sett fram í fjárlögum ársins 2025. Í stöðumatinu er að finna nánari upplýsingar um stöðu mannauðsmála ríkisins, tölfræði um viðfangsefnið, innlenda og erlenda, sem og samanburð við önnur ríki. Stöðumatið gefur yfirlit yfir lykilviðfangsefnin framundan og helstu leiðir ásamt áherslum við úrlausn þeirra.
Nú gefst framkvæmdaraðilum, samstarfsaðilum og hagsmunaaðilum kostur á að taka þátt og koma sínum sjónarmiðum og sérþekkingu um málefnið á framfæri. Með því er hvatt til umræðu um stöðumat, viðfangsefni og framtíðarsýn fyrir stefnu ríkisins í mannauðsmálum ásamt áherslum og valkostum. Öllum er frjálst að senda inn umsögn eða ábendingu. Tímabil sem opið samráðsferli stendur yfir í samráðsgátt á Ísland.is er 6. maí til og með 27. maí 2025. Athugið framlengdur frestur til 30. maí 2025.
Að því loknu verða niðurstöður dregnar saman og mótuð stefna um framtíðarsýn mannauðsmála hjá ríkinu ásamt helstu áherslum og markmiðum. Stefnu fylgir yfirleitt aðgerðaáætlun og er ætlunin að slík áætlun fylgi stefnu ríkisins í mannauðsmálum.
Stefnan verður gefin út af fjármála- og efnahagsráðuneytinu og mun ná til allra stofnana ríkisins.
Mikið virði felst í því bæði fyrir starfsfólk ríkisins og stofnanir þess að sett verði fram heildstæð og skýr stefna í mannauðsmálum ásamt aðgerðaáætlun. Í því skyni þarf að skilgreina viðmið fyrir stofnanir og starfsfólk í stjórnun mannauðsmála. Á þann hátt skapast grundvöllur fyrir markvissum árangri í innri starfsemi stofnana, bættu starfsumhverfi fyrir starfsfólk ríkisins, aukinni skilvirkni og fyrst og fremst góðum árangri í þjónustu við samfélagið.
Starfsfólk ríkisins er í lykilhlutverki við að veita skilvirka, samræmda og hagkvæma opinbera þjónustu. Því er mikilvægt að ríkið mæti þeim samfélagsbreytingum sem umhverfismál, fólksfjölgun, öldrun þjóðarinnar, aukinn fjölbreytileiki og fjölmenning fela í sér með skýrri stefnu í mannauðsmálum.
Margvíslegar áskoranir og ekki síður tækifæri skapast með breytingum á borð við komu nýrra kynslóða á vinnumarkaðinn, þróun starfa þar sem ný störf verða til, önnur hverfa og enn önnur krefjast ólíkrar þekkingar, hæfni og færni ásamt auknum væntingum starfsfólks til vinnustaða og auknum kröfum um gæði mannauðsstjórnunar.
Tillögur að áherslum í nýrri stefnu eru eftirfarandi:
-Skýr tilgangur – í öllum störfum og verkefnum. Störf sem eru bæði rétt mönnuð og skilgreind í takti við þarfir hverju sinni.
-Þekking til árangurs – markviss fræðsla og sýnileg starfsþróun.
-Árangursmiðuð menning og viðhorf – traust, virðingarrík samskipti, árangursrík teymi, árangur sé sýnilegur og að tekið sé eftir því sem vel er gert.
-Breytingar í takti við framfarir – að stofnanir og starfsfólk séu í stakk búin til að takast á við breytingar í starfsemi og þjónustu.
-Stefnumiðuð mannauðsstjórnun – betri nýting gagna, bætt mannaflaspá, áhersla á fjölbreytileika, jafnrétti, inngildingu og forvarnir.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Kjara- og mannauðssýsla ríkisins
kmr@fjr.is