Til umsagnar
25.4.–2.6.2025
Í vinnslu
3.6.–19.10.2025
Samráði lokið
20.10.2025
Mál nr. S-80/2025
Birt: 25.4.2025
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar umsagnir bárust. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 25. september 2025.
Áformað er að leiða í landslög reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/606 um breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði (ELTIF).
Með lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022, voru ákvæði reglugerðar (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði innleidd. ELTIF-sjóðir eru ætlaðir til langtímafjárfestinga til ýmissa verkefna á sviði t.a.m. innviða, óskráðra fyrirtækja og skráðra fyrirtækja undir ákveðnum stærðarmörkum. Reglugerð (ESB) 2023/606 breytir reglugerð (ESB) 2015/760. Helstu breytingarnar eru í tengslum við fjárfestingarheimildir ELTIF-sjóða, fækkun hindrana fyrir almenna fjárfesta til að fjárfesta í slíkum sjóðum og að mæla fyrir um möguleika til sölu á fjárfestingu í ELTIF-sjóði áður en líftíma sjóðs lýkur.
Reglugerðin tók gildi innan Evrópusambandsins 10. janúar 2024. Unnið er að upptöku gerðarinnar EES-samninginn.
Lagðar eru til breytingar á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022, til innleiðingar á reglugerðinni.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
postur@fjr.is