Til umsagnar
9.4.–7.5.2025
Í vinnslu
8.5.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-74/2025
Birt: 9.4.2025
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Ný reglugerð um yfirgjaldsþjónustu og afnám eldri reglugerðar um yfirgjaldsþjónustu, nr. 780/2010.
Reglugerðardrög munu koma í stað gildandi reglugerðar nr. 780/2010 um yfirgjaldsþjónustu í tal- og farsímanetum. Reglugerðardrög voru unnin í samstarfi við Fjarskiptastofu og voru eru unnin í tengslum við uppfærslu á eldri reglugerðum eftir gildistöku nýrra fjarskiptalaga nr. 70/2022. Yfirgjaldsþjónusta er þjónusta þar sem þjónustuveitandi innheimtir gjald, s.s. með upphafsgjaldi og/eða með mínútugjaldi, vegna símtala eða SMS-skilaboða, sem er innheimt í gegnum fjarskiptaþjónustu viðkomandi endanotanda.
Helstu breytingar á reglugerðinni eru eftirfarandi:
Í fyrsta lagi er gerð orðalagsbreytingar til samræmis við hugtakanotkun í nýjum fjarskiptalögum, en þar ber hæst að ekki er vísað til tal- og farsímaneta heldur til almennra fjarskiptaneta.
Í öðru lagi eru gerðar breytingar á 3. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar um undanþágu frá upplýsingaskyldu þjónustuveitenda yfirgjaldsþjónustu þegar um er að ræða fjársafnanir sem uppfylla skilyrði laga nr. 5/1977 um opinberar fjársafnanir. Ekki er talið nauðsynlegt að viðhafa sérstaka neytendavernd í upphafi símtals er önnur skilyrði undanþáguákvæðisins eru uppfyllt, þ.e. að um sé að ræða fjáröflun sem uppfylli skilyrði laga nr. 5/1977; fjáröflunin stendur yfir í tilgreindan takmarkaðan tíma; og kostnaði og fyrirkomulagi gjaldtökunnar er skilmerkilega komið á framfæri með öðrum hætti. Er orðalagi ákvæðisins því breytt á þann hátt að í stað þess að heimilt sé að víkja frá upplýsingaskyldu að ákvæði um upplýsingaskyldu gildi ekki ef framangreind skilyrði eru uppfyllt. Þá er samsvarandi ákvæði bætt við sem nýrri 3. mgr. 9. gr., þess efnis að vikið sé frá skyldu til að afla sérstaks samþykkis fyrir gjaldtöku, að því gefnu að sömu skilyrði séu uppfyllt.
Í þriðja lagi eru lagt til að 2. mgr. 8. gr. og 3. mgr. 9. gr. falli brott. Umræddar málsgreinar eru annars vegar undanþáguákvæði frá upplýsingaskyldu um gjaldtöku og hins vegar undanþáguákvæði kröfu um að neytandi samþykki gjaldtöku með sérstakri aðgerð, en báðar undanþágu eiga við um þriggja og fjögurra stafa númer með yfirgjaldi. Í núgildandi reglugerð er þriggja og fjögurra stafa númerum með yfirgjaldi bæði veitt undanþága frá upplýsingaskyldu og kröfu til þess að neytandi þurfi að samþykkja gjaldtökuna með sérstakri aðgerð. Í framangreindum undanþágum felst í raun að neytandi fær engar upplýsingar um að kostnaður við símtal sé umfram önnur hefðbundin símtöl. Ekki er talið að framangreind undanþága frá upplýsingaskyldu og samþykki fyrir gjaldtöku samrýmist sjónarmiðum um neytendavernd og er því, eins og framan greinir, lagt til að undanþáguákvæðin verði felld brott.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
gunnar.ingi.agustsson@irn.is