Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 9.–23.4.2025

2

Í vinnslu

  • 24.4.2025–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-71/2025

Birt: 9.4.2025

Fjöldi umsagna: 0

Drög að reglugerð

Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Afnám reglugerðar um fjarskiptasjóð

Málsefni

Afnám reglugerðar um stjórn fjarskiptasjóðs og verkefnisstjórn um framkvæmd fjarskiptaáætlunar, nr. 870/2014.

Nánari upplýsingar

Í lok árs 2024 féllu úr gildi lög um fjarskiptasjóð nr. 132/2005 og við sömu tímamót lauk sjóðurinn starfsemi sinni. Fjarskiptasjóði var komið á laggirnar 2006 og átti upphaflega hafa gildistíma til 2011. Í ágúst á síðasta ári lýsti þáverandi háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra því yfir sjóðurinn hafði lokið tilgangi sínum og taldi rétt að leggja hann niður. Tilfallandi verkefni um uppbyggingu fjarskipta og áframhaldandi sókn færðust yfir til Fjarskiptastofu og þess ráðuneyti sem fer með fjarskiptamál. Í 8. gr. laga um fjarskiptasjóð var að finna reglugerðarheimild og á grundvelli hennar hafði verið sett reglugerð um stjórn fjarskiptasjóðs og verkefnisstjórn um framkvæmd fjarskiptaáætlunar, nr. 870/2014. Umrædd reglugerð fjallar að mestu, eins og nafn hennar gefur til kynna, um hlutverk sjóðsins, skipan stjórnar, vanhæfi stjórnarmanna og önnur praktísk málefni eru vörðuðu fjarskiptasjóð. Reglugerðardrögum þessum er ætlað að fella formlega úr gildi reglugerð um stjórn fjarskiptasjóðs og verkefnisstjórn um framkvæmd fjarskiptaáætlunar, 870/2014.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (1)

Umsjónaraðili

gunnar.ingi.agustsson@irn.is