Til umsagnar
7.–21.4.2025
Í vinnslu
22.–24.4.2025
Samráði lokið
25.4.2025
Mál nr. S-69/2025
Birt: 7.4.2025
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar umsagnir bárust. Frumvarpsdrög voru birt í samráðsgátt 25.04.2025.
Áformað er að leiða í landslög reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/606 um breytingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði (ELTIF).
Með lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022, voru ákvæði reglugerðar (ESB) 2015/760 um evrópska langtímafjárfestingarsjóði innleidd. ELTIF-sjóðir eru ætlaðir til langtímafjárfestinga til ýmissa verkefna á sviði t.a.m. innviða, óskráðra fyrirtækja og skráðra fyrirtækja undir ákveðnum stærðarmörkum. Reglugerð (ESB) 2023/606 breytir reglugerð (ESB) 2015/760. Helstu breytingarnar eru í tengslum við fjárfestingarheimildir ELTIF-sjóða, það að draga úr hindrunum fyrir almenna fjárfesta til að fjárfesta í slíkum sjóðum og að mæla fyrir um möguleika til sölu á fjárfestingu í ELTIF-sjóði áður en líftíma sjóðs lýkur.
Reglugerðin tók gildi innan Evrópusambandsins 10. janúar 2024. Unnið er að upptöku gerðarinnar EES-samninginn. Áformað er að gerðin verði innleidd hér á landi með breytingum á lögum um evrópska langtímafjárfestingarsjóði, nr. 115/2022.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is