Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 31.3.–8.4.2025

2

Í vinnslu

  • 9.4.2025–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-65/2025

Birt: 31.3.2025

Fjöldi umsagna: 15

Drög að reglugerð

Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegur og fiskeldi

Reglugerð um 13. breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla

Málsefni

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla.

Nánari upplýsingar

Lagt er til að aflaskráningu strandveiðibáta verði lokið á hafnarvog. Með þeirri breytingu muni endurvigtunum fækka um þúsundir árlega með minni líkum á mistökum við innslátt upplýsingum. Þá mun breytingin einnig draga verulega úr möguleikum á rangri skráningu á ís í afla.

Breytingin er eftirfarandi: Á eftir 3. mgr. 11. gr kemur ný málsgrein svohljóðandi „Allan strandveiðiafla skal vigta á hafnarvog. Vigtarmaður skal draga 3% frá vegnum afla vegna áætlaðs íss í afla eftir að hafa gengið úr skugga um að aflinn sé ísaður“.

Rúmlega helmingur allra landana dagróðrabáta kemur frá strandveiðiflotanum, í framhaldi af reynslu af breytingunni verður skoðað hvort ástæða sé til að ljúka allri vigtun dagróðrabáta á hafnarvog við löndun.

Breytingin er mikilvægt skref til að auka traust, trúverðugleika og öryggi í fiskveiðistjórnun og muni stuðla að hagkvæmari ferlum við skráningu sjávarafla.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa auðlinda

atrn@atrn.is