Til umsagnar
19.–29.3.2025
Í vinnslu
30.3.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-61/2025
Birt: 19.3.2025
Fjöldi umsagna: 3
Drög að frumvarpi til laga
Utanríkisráðuneytið
Utanríkismál
Með frumvarpinu er fyrirhugað að flytja ábyrgð á starfsemi netöryggissveitarinnar CERT-IS frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins.
Við myndun ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins í desember 2024 kom fram það markmið ríkisstjórnarinnar að styrkja hlutverk utanríkisráðuneytisins á sviði varnar- og öryggismála, þ.m.t. netöryggismála og þar m.a. litið til mögulegs flutnings á netöryggissveitinni CERT-IS til utanríkisráðuneytisins. Þann 28. febrúar sl. undirrituðu utanríkisráðuneytið og Fjarskiptastofa undir samkomulag þar sem að starfsemi CERT-IS var flutt í húsnæði utanríkisráðuneytisins. Með flutningnum er CERT-IS tryggð fyrsta flokks aðgengi að vottuðum öruggum vinnu- og fundarýmum og tölvu- og samskiptakerfum sem nauðsynlegt er vegna eðlis starfsemi CERT-IS, m.a. vegna fjölþjóðlegs samstarfs á sviði netvarna og netöryggis.
Með frumvarpinu er starfsemi netöryggissveitar (CERT-IS) flutt frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins og netvarnir og netöryggi á sviði varnarmála fest í sessi sem lögbundin verkefni á sviði varnarmála sem heyra undir utanríkisráðuneytið. Þær meginbreytingar sem ráðgerðar eru með frumvarpinu eru flutningur ákvæða um starfrækslu netöryggissveitar úr lögum um Fjarskiptastofu og yfir í varnarmálalög. Þannig verður starfræksla netöryggissveitarinnar gerð að lögbundnu verkefni utanríkisráðuneytisins. Samhliða þessu þarf að gera breytingar á fjarskiptalögum og lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða til að endurspegla flutninginn frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins. Netöryggi og netvörnum á sviði varnarmála er jafnframt bætt við lista yfir varnartengd verkefni í 7. gr. varnarmálalaga og fyrirséð að netöryggissveitin muni sinna þeim verkefnum auk núverandi verkefna.
Tilgangur þessara breytinga er ekki að breyta lögbundnum verkefnum netöryggissveitarinnar skv. lögum um Fjarskiptastofu, fjarskiptalögum og lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. Hins vegar tryggja þessar breytingar netöryggissveitinni fullnægjandi starfsaðstöðu til að sinna lögbundnum verkefnum sínum og á sama tíma verður hægt að styrkja hlutverk netöryggissveitarinnar og utanríkisráðuneytisins þegar kemur að netvörnum og netöryggi á sviði varnarmála. Með frumvarpinu er því stefnt að því að styrkja bæði borgaralegt og varnarmálatengt netöryggi og netvarnir sem er mikilvægur hlekkur í öryggis- og varnarmálum Íslands.
Skjal í samráðsgátt var uppfært 26. mars 2025 (greinargerð kaflar 1 og 5).
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Laga- og stjórnsýsluskrifstofa
los@utn.is