Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 3.–10.3.2025

2

Í vinnslu

  • 11.3.2025–

Samráði lokið

Mál nr. S-55/2025

Birt: 3.3.2025

Fjöldi umsagna: 1

Áform um lagasetningu

Atvinnuvegaráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Áform um breytingu á lögum um faggildingu o.fl

Málsefni

Fyrirhugaðar eru breytingar á lögum um faggildingu o.fl., nr. 24/2006, í því skyni að treysta grunn faggildingarstarfseminnar og færa löggjöfina til samræmis við viðeigandi evrópulöggjöf.

Nánari upplýsingar

Reglugerð (EB) 765/2008, um kröfur varðandi faggildingu og markaðseftirlit í tengslum við markaðssetningu á vörum, kveður m.a. á um að faggildingarstofnanir aðildarríkja þurfi reglulega að undirgangast jafningjamat til að tryggja samræmi í faggildingarstarfsemi á innri markaðnum. Faggildingarsvið Hugverkastofunnar undirgekkst nýverið jafningjamat evrópsku faggildingarsamtakanna, þar sem leiddir voru í ljós nokkrir ágallar á gildandi löggjöf, sem nauðsynlegt er að lagfæra. Á meðal þess sem til stendur að uppfæra í lögum um faggildingu o.fl. er eftirtalið:

• Bætt verði við ákvæði um markmið laganna.

• Skilgreiningar hugtaka í lögunum verði færðar til samræmis við skilgreiningar í reglugerð (EB) 765/2008. Bætt verði við skilgreiningum á nýjum samræmismatsaðferðum sem fyrirsjáanlegt er að muni þarfnast faggildingar á komandi árum.

• Kveðið verði skýrt á um að faggildingarsvið Hugverkastofunnar sé eina faggildingarstofnunin á Íslandi og sé faglega og fjárhagslega sjálfstæð eining.

• Gerð verði skýrari grein fyrir fjármögnun faggildingarstarfseminnar.

• Kveðið verði á um heimild faggildingarsviðs til að setja á stofn nefndir og fela þeim tiltekin verkefni í umboði sviðsins, eins og nauðsynlegt kann að reynast.

• Skýrð verði stjórnsýsluleg staða ákvarðana faggildingarsviðsins um faggildingu.

• Kveðið verði skýrt á um skyldu faggildingarsviðs til að starfa í fullu samræmi við kröfur reglugerðar (EB) 765/2008, viðeigandi samhæfða staðla og reglur EA.

• Gjaldskrárákvæði laganna verði uppfært.

• Kveðið verði á um að tilkynntir aðilar skuli uppfylla kröfur faggildingar, í samræmi við kröfur ákvörðunar (EB) 768/2008, sem gerir ráð fyrir að slíkt sé staðfest með faggildingarvottorði eða sannað á annan hátt af viðkomandi stjórnvaldi.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa viðskipta og markaða

steindor.dan.jensen@atrn.is