Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 3.–10.3.2025

2

Í vinnslu

  • 11.3.2025–2.2.2026

3

Samráði lokið

  • 3.2.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-53/2025

Birt: 3.3.2025

Fjöldi umsagna: 2

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Drög að frumvarpi um starfstengda eftirlaunasjóði (IORP II)

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust. Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi (þskj. 283, 252. mál) en ekki náðist að ljúka afgreiðslu þess fyrir þinglok sumarið 2025. Málið var endurflutt á 157. löggjafarþingi og varð að lögum í nóvember 2025.

Málsefni

Til umsagnar eru drög að frumvarpi um starfstengda eftirlaunasjóði (IORP II).

Nánari upplýsingar

Um er að ræða drög að nýjum lögum um starfsemi starfstengdra eftirlaunasjóða. Frumvarpið er byggt á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2341 frá 14. desember 2016 um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri. Tilskipunin er í daglegu tali nefnd „IORP II“ (sem er skammstöfun á „institutions for occupational retirement provision“). Gildandi lög um starfstengda eftirlaunasjóði, nr. 78/2007, byggðust á forvera IORP II, þ.e. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/41/EB frá 3. júní 2003, um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri (hér eftir IORP I). Með frumvarpinu er lagt til að ný heildarlög um starfssemi starfstengda eftirlaunasjóði leysi af hólmi lög nr. 78/2007.

IORP II er liður í frekari viðleitni Evrópusambandsins til að þróa innri markað á Evrópska efnahagssvæðinu á þann veg að fjármálastofnunum sé kleift að starfa í öðrum aðildarríkjum og tryggja víðtæka vernd fyrir neytendur fjármálaþjónustu. Líkt og forveri IORP II gerir tilskipunin stofnunum fært að bjóða skilgreinda þjónustu yfir landamæri innan Evrópska efnahagssvæðisins og skapar þannig forsendur fyrir öflugri innri markaði fyrir starfstengdan eftirlaunasparnað.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (6)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

fjr@fjr.is