Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 27.2.–13.3.2025

2

Í vinnslu

  • 14.3.2025–6.1.2026

3

Samráði lokið

  • 7.1.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-52/2025

Birt: 27.2.2025

Fjöldi umsagna: 6

Drög að frumvarpi til laga

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Fjölskyldumál

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (viðmiðunartímabil tekna, EES-reglur)

Niðurstöður

Niðurstaða máls var frumvarp lagt fram á Alþingi.

Málsefni

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, (viðmiðunartímabil tekna, EES-reglur).

Nánari upplýsingar

Frumvarp þetta er lagt fram til að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA hvað varðar innleiðingu reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 883/2004 frá 29. apríl 2004 um samræmingu almannatryggingakerfa.

Markmiðið þess er að koma til móts við foreldra sem starfa á innlendum vinnumarkaði en hafa starfað í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins á viðmiðunartímabili tekna samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020.

Lagt er til að við 23. gr. laganna verði bætt við ný málgrein þar sem kveðið er á um þau nýmæli að þegar foreldri hefur starfað á innlendum vinnumarkaði skemur en fjóra mánuði á viðmiðunartímabili tekna skv. 1., 2. eða 3. mgr. greinarinnar en hefur starfað að hluta eða að öllu leyti í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, Norðurlandasamningnum um almannatryggingar, stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða samningi milli ríkisstjórnar Íslands annars vegar og ríkisstjórnar Danmerkur og heimastjórnar Færeyja hins vegar á fyrrnefndu viðmiðunartímabili skuli miða útreikning á meðaltali heildarlauna við þá almanaksmánaði sem foreldrið hefur starfað á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingarmánuð barns eða þann almanaksmánuð sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (6)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa vinnumarkaðar

frn@frn.is