Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 24.2.–10.3.2025

2

Í vinnslu

  • 11.–30.3.2025

3

Samráði lokið

  • 31.3.2025

Mál nr. S-48/2025

Birt: 24.2.2025

Fjöldi umsagna: 2

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Innleiðing reglugerðar Evrópusambandsins um varfærniskröfur til lánastofnana (CRR III)

Niðurstöður

Frumvarp var lagt fram á Alþingi 29. mars 2025 (263. mál, 295. þingskjal). Í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu er greint frá umsögnum sem bárust um drög að frumvarpinu og brugðist við þeim.

Málsefni

Áformað er að leiða í landslög nýja reglugerð Evrópusambandsins um varfærniskröfur til lánastofnana, svonefnda CRR III-reglugerð.

Nánari upplýsingar

Áformað er að leiða í landsrétt reglugerð (ESB) 2024/1623, svonefnda CRR III-gerð, sem varðar banka og aðrar lánastofnanir. Veigamestu breytingar í gerðinni varða sennilega breytingar á kröfum til lánastofnana um eigið fé til að mæta útlána-, markaðs- og rekstraráhættu. Meginmarkmið hennar er að efla viðnámsþrótt lánastofnana, með því að gera eiginfjárkröfur áhættunæmari þannig að þær endurspegli betur áhættu sem lánastofnanir standa frammi fyrir, og treysta þannig fjármálastöðugleika. Einnig er áformað að innleiða framselda reglugerð (ESB) 2024/2795 sem frestar tilteknum breytingum samkvæmt CRR III á kröfum um eigið fé til að mæta markaðsáhættu til janúar 2026. Áætlað er að innleiðing gerðanna verði til þess að heildareiginfjárkröfur til lánastofnana hér á landi minnki lítillega.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (25)

Tenging við önnur mál (2)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

gunnlaugur.helgason@fjr.is