Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 21.2.–10.3.2025

2

Í vinnslu

  • 11.–16.3.2025

3

Samráði lokið

  • 17.3.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-44/2025

Birt: 21.2.2025

Fjöldi umsagna: 8

Drög að frumvarpi til laga

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár (ýmsar breytingar)

Niðurstöður

Frumvarpið fór í frekari vinnslu í ráðuneytinu, stefnt er að framlagningu þess á 156. löggjafarþingi.

Málsefni

Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytingu á lögum um sjúkraskrár (ýmsar breytingar).

Nánari upplýsingar

Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar á lögum um sjúkraskrár sem allar eiga það sameiginlegt að vera ætlað að stuðla að stafrænni þróun, betri þjónustu og bættu öryggi sjúklinga. Markmiðið með frumvarpinu er enn fremur að stuðla að hagræðingu og skilvirkni í heilbrigðisþjónustu.

Einnig er lagt til að heimilt verði að taka gjald fyrir vinnu við yfirferð sjúkraskrár, afritun og afhendingu sjúkraskrárgagna til að mæta þeim kostnaði sem af því hlýst.Þá er lagt til að sjúklingur eða umboðsmaður hans geti veitt heimild fyrir miðlun upplýsinga til aðila sem veitir honum samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu. Einnig eru lagðar til tilteknar breytingar í því skyni að skýra hlutverk eftirlitsaðila með meðferð sjúkraskráa. Loks eru lagðar til breytingar sem miða að því að skýra hvaða stjórnvald ber ábyrgð á því að kæra meiri háttar brot gegn lögunum til lögreglu.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (11)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stjórnsýslu

hrn@hrn.is