Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 19.2.–4.3.2025

2

Í vinnslu

  • 5.3.2025–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Skrá áskrift að máli

Mál nr. S-38/2025

Birt: 19.2.2025

Fjöldi umsagna: 7

Drög að frumvarpi til laga

Innviðaráðuneytið

Sveitarfélög og byggðamál

Breytingar á sveitarstjórnarlögum - mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög

Málsefni

Lagður er grundvöllur fyrir skýrara verklagi um fjárhagslegt áhrifamat á sveitarfélög og formlegar leiðir hvernig farið verður með ágreining ríkis og sveitarfélaga um slíkt mat.

Nánari upplýsingar

Í þingsályktun um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028 sem samþykkt var á Alþingi þann 5. desember 2023 var lagt til í sjöttu aðgerð aðgerðaáætlunarinnar, að fram færi endurskoðun á ferli kostnaðarmats, þ.e. mati á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga. Aðgerðinni er m.a. ætlað að koma til móts við gagnrýni sveitarfélaganna, m.a. um að dæmi séu um að kostnaðarmat af þessu tagi séu ekki framkvæmd, matið sé oft ekki fullnægjandi, óljóst sé hvenær leita eigi umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og hvernig leyst skuli úr ágreiningi.

Skipaður var starfshópur á vegum ráðuneytisins sem var falið að skilgreina feril kostnaðarmats í þeim tilgangi að tryggja sátt um matið og fjármögnun viðkomandi verkefna og að gætt yrði þess að mat á fjárhagsáhrifum feli ávallt í sér skýrar þjónustukröfur og fullnægjandi upplýsingar um fjármögnun. Þá bar hópnum að sjá til þess að verkferlar yrðu með þeim hætti að matið verði ávallt borið undir Samband íslenskra sveitarfélaga til umsagnar og síðast en ekki síst bar starfshópnum að taka afstöðu til þess hvernig farið yrði með úrlausn ágreiningsmála milli ríkis og sveitarfélaga um mat á fjárhagsáhrifum. Frumvarp þetta er byggt á tillögum framangreinds starfshóps en skýrsla hópsins er birt í samráðsgátt samhliða frumvarpinu.

Innsendar umsagnir (7)

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (2)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa sveitarfélaga og byggðamála

irn@irn.is