Til umsagnar
12.–26.2.2025
Í vinnslu
27.–26.2.2025
Samráði lokið
27.2.2025
Mál nr. S-28/2025
Birt: 12.2.2025
Fjöldi umsagna: 1
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Ein umsögn barst frá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF). Í umsögninni kom fram að SFF væri almennt jákvætt gagnvart frumvarpinu og mikilvægt væri að til staðar séu skýrar leikreglur fyrir þennan hluta fjármálamarkaðarins sem hefur lengst af staðið nánast utan laga og reglna. SFF fjallaði almennt um áhættusemi fjárfestinga í sýndareignum og hvatti til aukins fjármálalæsis almennings. Umsögnin gaf ekki tilefni til sérstakra viðbragða varðandi vinnslu frumvarpsins.
Um er að ræða drög að frumvarpi sem felur í sér innleiðingu reglugerðar (ESB) 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir
Frumvarpinu er ætlað að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 frá 31. maí 2023 um markaði fyrir sýndareignir og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1093/2010 og (ESB) nr. 1095/2010 og tilskipunum 2013/36/ESB og (ESB) 2019/1937 (hér eftir MiCA). Frumvarpið felur í sér setningu nýrra laga um markaði fyrir fyrir sýndareignir. Meginefni frumvarpsins er lögfesting MiCA og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, einkum um eftirlit, þ. á m. heimildir eftirlitsaðila til eftirlits og upplýsingaöflunar, viðurlög fyrir brot gegn ákvæðum MiCA, og heimild ráðherra og Seðlabanka Íslands til að setja stjórnvaldsfyrirmæli. Þá er í frumvarpinu mælt fyrir um breytingar á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, nr. 87/1998, lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, lögum um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017, og lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 140/2018.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
fjr@fjr.is