Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 12.–28.2.2025

2

Í vinnslu

  • 1.–16.3.2025

3

Samráði lokið

  • 17.3.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-27/2025

Birt: 12.2.2025

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Breyting á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði (heimild til setningar stjórnvaldsfyrirmæla)

Niðurstöður

Engin umsögn barst. Frumvarp var lagt fram á 156. löggjafarþingi (172. mál).

Málsefni

Lagðar eru til breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lögum um verðbréfasjóði til að unnt verði að leiða í íslenskan rétt efni Evrópugerða með stjórnvaldsfyrirmælum.

Nánari upplýsingar

Lögð er til breyting á 117. gr laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, til breytingar á núgildandi reglusetningarheimild Seðlabanka Íslands. Þá eru lagðar til breytingar á reglusetningarheimildum 26., 100., 127.-129. og 134. gr. laga um verðbréfasjóði, nr. 116/2021, til að laga samræmi við reglusetningarheimildir í UCITS-tilskipuninni og til að gæta samræmis við þá verkaskiptingu sem fjármála- og efnahagsráðuneytið og Seðlabankinn hafa viðhaft við innleiðingu Evrópugerða í íslenskan rétt með stjórnvaldsfyrirmælum. Settar hafa verið reglugerðir framkvæmdastjórnar (ESB) 2024/910, (ESB) 2014/912 og (ESB) 2024/913 sem fyrirhugað er að verði innleiddar í íslenskan rétt með stjórnvaldsfyrirmælum.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (3)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

postur@fjr.is