Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 4.–18.2.2025

2

Í vinnslu

  • 19.2.–31.3.2025

3

Samráði lokið

  • 1.4.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-18/2025

Birt: 4.2.2025

Fjöldi umsagna: 4

Áform um lagasetningu

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Fjölskyldumál

Áform um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu)

Niðurstöður

Áform um frumvarpið voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 4. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 18. febrúar til að veita umsagnir um áformin. Alls bárust fjórar umsagnir um áformin sem komu til skoðunar við lokavinnslu frumvarpsins. Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 19. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 5. mars til að veita umsagnir um drögin (mál nr. S-36/2025).

Málsefni

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið kynnir áform um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020, (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu)

Nánari upplýsingar

Gert er ráð fyrir að í frumvarpinu verði lagt til að réttur til fæðingarorlofs, sem og réttur til fæðingarstyrks, vegna fjölburafæðinga verði aukinn þannig að foreldrar eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs um sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt sem fæðist lifandi. Einnig er gert ráð fyrir að lagt verði til að foreldrar sem frumættleiða eða taka í varanlegt fóstur fleiri börn en eitt á sama tíma eigi sameiginlegan rétt á lengingu fæðingarorlofs eða greiðslu fæðingarstyrks um sex mánuði fyrir hvert barn umfram eitt.

Þá er gert ráð fyrir að lagt verði til að heimilt verði að lengja fæðingarorlof foreldris sem fætt hefur barn um allt að tvo mánuði vegna alvarlegra veikinda foreldrisins í tengslum við meðgönguna, enda verði veikindin rakin til meðgöngunnar og foreldrið hafi af þeim völdum verið ófært um að annast barn sitt í fæðingarorlofi

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (5)

Umsjónaraðili

Skrifstofa vinnumarkaðar

frn@frn.is