Til umsagnar
3.–17.2.2025
Í vinnslu
18.2.–17.3.2025
Samráði lokið
18.3.2025
Mál nr. S-13/2025
Birt: 3.2.2025
Fjöldi umsagna: 3
Áform um lagasetningu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál
Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landsvirkjunar var lýst yfir stuðningi við breytingarnar. Í umsögn Minjastofnunar Íslands kom fram að ganga mætti lengra og afnema umsagnarskylduna. Fjarlægja aldursviðmið og kröfu, en opna formlega heimild sveitarfélaga og eigenda húsa og mannvirkja sem ekki falli undir aldursfriðun, en séu varðveisluverð og hluti af byggingararfi þjóðarinnar, að leita álits Minjastofnunar Íslands. Ráðuneytið taldi ábendingar Minjastofnunar málefnalegar og var tekin sú ákvörðun að fara þá leið í frumvarpinu sem stofnunin lagði til.
Lagt er til að endurskoðað verði ákvæði um umsagnarskyldu húsa í lögum um menningarminjar nr. 80/2012.
Tilkynnt er um áform um lagabreytingu á 30. gr. laga um menningarminjar er lítur að verndun annarra húsa og mannvirkja sem ekki njóta friðunar en voru byggð 1940 eða fyrr, svokallaða umsagnarskyldu, en í þeim tilvikum er kveðið á um skyldu eigenda til að leita álits Minjastofnunar Íslands ef þeir hyggjast breyta þeim, flytja þau eða rífa.
Forsaga málsins er sú að fyrrgreindu ákvæði var breytt með 2. gr. laga nr. 126/2022 um breytingu á lögum um menningarminjar þar sem viðmiðunarártalið 1940 kom inn í stað ársins 1925. Sú breyting að færa viðmiðunarártal 30. gr. laga um menningarminjar úr 1925 í 1940 hefur haft þau áhrif að álag á stjórnsýslu minjamála hefur aukist töluvert. Umsagnarskyldan hefur þá reynst íþyngjandi fyrir húseigendur. Grundvallaratriði er að ekki eru talin nægjanlega sterk fagleg rök við tengsl byggingararfs sem réttlæti gildandi viðmiðunarártal í lögum. Því má jafnframt halda fram að íþyngjandi fyrirkomulag dragi úr getu Minjastofnunar til að fjalla á vandaðan hátt um öll mál sem til lengri tíma getur haft neikvæð áhrif á varðveislu húsa, annarra mannvirki og fornminja með hátt varðveislugildi sem sannarlega þarf að vernda.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa framkvæmda og eftirfylgni
urn@urn.is