Til umsagnar
3.–13.2.2025
Í vinnslu
14.2.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-12/2025
Birt: 3.2.2025
Fjöldi umsagna: 5
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Landbúnaður
Lagðar eru til breytingar á ákvæðum um forkaupsrétt sameigenda að jörðum. Einnig breytingar er varða möguleika sameigenda á að losna úr slíkri sameign ef samkomulag næst ekki.
Frumvarp þetta er samið í matvælaráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti. Meginefni þess snertir jarðir í óskiptri sameign en í því hugtaki felst að hver sameigandi á aðeins eignarhlutfall af heildareigninni en ekki sérgreindan eignarhluta.
Nánar tiltekið er lagt til að dregið verði úr þeim forkaupsrétti sameigenda að jörðum í óskiptri sameign sem kveðið var á um í lögum nr. 74/2022, sem m.a. fólu í sér breytingar á jarðalögum. Samkvæmt frumvarpinu mun forkaupsréttur sameigenda m.a. ekki ná til búskipta við hjónaskilnað, leyfa til setu í óskiptu búi, erfða eða sölu til maka, barns, barnabarns, kjörbarns, fósturbarns, annarra niðja, systkina eða foreldra. Sé hins vegar ráðstafað til annarra myndi forkaupsréttur sameigenda áfram gilda fullum fetum, þ.e.a.s. sami forkaupsréttur og gildir um ábúendur.
Ákvæði framangreindra laga nr. 74/2022 um forkaupsrétt sameigenda var einkum ætlað að sporna gegn óhóflegri fjölgun sameigenda, m.a. fyrir erfðir, en hefur reynst torvelt í framkvæmd og sætt athugasemdum dómstóla. Jörðum í fjölmennri óskiptri sameign er að fjölga, eigendahópar að stækka og fjöldi dánarbúa þar á meðal, sum frá gamalli tíð. Áfram er því ástæða til að sporna við þessari þróun, í þeim tilgangi að stuðla að nýtingu jarða í samræmi við landkosti og aðstæður hverju sinni, virkri ákvörðunartöku og skýru fyrirsvari.
Frumvarpið gerir því einnig ráð fyrir að auðvelda sameiganda að losna úr sameign þegar samkomulag næst ekki við aðra sameigendur um kaup á eignarhlutanum og fyrir liggur að skipting jarðarinnar gangi gegn skipulagsáætlunum sveitarfélags. Í slíkum tilvikum verði sameiganda heimilað að krefjast sölu jarðarinnar í heild, fyrir tilstilli sýslumanns og á grundvelli ákvæða um uppboð til slita á óskiptri sameign í lögum um nauðungarsölu auk jarðalaga, en aðrir sameigendur fái sanngjarnt ráðrúm til að leita annarra lausna, standi vilji þeirra til þess.
Til viðbótar er lagt til að kveðið verði á um innlausnarrétt þeirra sameigenda sem búsettir eru á viðkomandi jörð og reka þar lögbýli, að teknu tilliti til gildandi skipulagsáætlana. Með því er leitast við að styrkja nýtingu jarða til landbúnaðarframleiðslu og búsetu á þeim. Önnur atriði frumvarpsins varðandi jarðir í óskiptri sameign miða að því að styrkja gildandi reglur á grundvelli fenginnar reynslu.
Jafnframt er kveðið á um fleiri breytingar, m.a. að hámarksleigutími á ríkisjörðum verði lengdur úr 10 árum í allt að 50 ár. Núverandi hámarksleigutími er talinn hafa hamlað almennri jarðaumsýslu hjá ríkinu og nýtingu hentugra landbúnaðarjarða.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Þátttakendum í þessu samráðsferli var þó heimilt að óska eftir því að efni umsagnar og nafn sendanda birtist ekki í gáttinni.
Skrifstofa landbúnaðar
mar@mar.is