Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 3.–18.2.2025

2

Í vinnslu

  • 19.2.–24.6.2025

3

Samráði lokið

  • 25.6.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-11/2025

Birt: 3.2.2025

Fjöldi umsagna: 2

Drög að frumvarpi til laga

Innviðaráðuneytið

Sveitarfélög og byggðamál

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun (lagfæring, framlenging gildistíma)

Niðurstöður

Frumvarp til laga um svæðisbundna flutningsjöfnun , 176. mál á 156. löggjafarþingi, varð að lögum þann 22. maí 2025. Enginn ágreiningur var um málið á Alþingi.

Málsefni

Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á gildandi lögum um svæðisbundna flutningajöfnun til að færa 3. mgr. 6. gr. í rétt horf og framlengja gildistíma laganna.

Nánari upplýsingar

Við undirbúning á framlagningu frumvarps til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun fyrir 154. löggjafarþing þar sem lagðar voru til breytingar á 6. gr. laganna, voru gerðar athugasemdir við að í 3. mgr. 6. gr. laganna væri að finna tilvísun til 200.000 evra. Bent var á að íslenskar krónur væru lögeyrir hérlendis og það ætti að endurspeglast í íslenskri löggjöf nema veigamikil rök mæltu gegn því. Með frumvarpi þessu er m.a. ætlunin að bæta úr þessu.

Við vinnslu frumvarpsins kom svo í ljós að ekki er lengur miðað við gengi sem ESA gefur út og birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins og á vef stofnunarinnar við umreikning yfir í íslenskar krónur eins og getið er í 2. málslið 3. mgr. 6. gr. laganna. Við nánari eftirgrennslan hefur verið frá 1. janúar 2020 stuðst við annað verklag skv. fyrirmælum frá Evrópu og hefur því verklagi verið fylgt við útreikninga frá 1. janúar 2020. Lagt er til að lagatextanum verði breytt.

Þá liggur fyrir að löggjöfin muni renna sitt skeið á enda þann 31. desember 2025. Fyrir liggur vilji til að viðhalda þeirri styrkvæðingu sem lögin kveða á um enda er gert ráð fyrir fjármögnun laganna í fjármálaáætlun til næstu fimm ára.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (11)

Tenging við önnur mál (3)

Umsjónaraðili

Skrifstofa sveitarfélaga og byggðamála

irn@irn.is