Til umsagnar
30.1.–24.4.2025
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-7/2025
Birt: 30.1.2025
Fjöldi umsagna: 11
Annað
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Verkefnisstjórn rammaáætlunar kynnir tillögur að flokkun tíu vindorkukosta.
Í eftirfarandi greinargerð setur verkefnisstjórn 5. áfanga rammaáætlunar fram tillögur að flokkun tíu vindorkuverkefna, þ.e. Alviðra, Garpsdalur, Hnotasteinn, Hrútavirkjun, Hrútmúlavirkjun, Mosfellsheiðarvirkjun I, Mosfellsheiðarvirkjun II, Reykjanesgarður, Sólheimar og Vindheimavirkjun.
Í lögum um verndar og orkunýtingaráætlun eru skilgreind tvö umsagnarferli. Fyrra umsagnarferlið um drög að tillögum verkefnastjórnar stóð í fjórar vikur, eða frá 12. desember 2024 til 10. janúar 2025. Þetta er seinna umsagnarferlið um tillögur verkefnisstjórnar, sem gert er ráð fyrir að taki tólf vikur.
Verkefnisstjórn fól öllum fjórum faghópum sínum að vinna greiningar og leggja mat á áhrif vindorkuverkefnanna. Þær greiningar liggja nú fyrir og fylgja niðurstöður þeirra sem fylgiskjöl með greinargerðinni.
ATH. Röðun virkjunarkosta eftir hagkvæmni hefur verið leiðrétt í töflu 5 (20.feb)
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar
uos@uos.is