Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 12.–26.2.2025

2

Í vinnslu

  • 27.2.–15.4.2025

3

Samráði lokið

  • 16.4.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-5/2025

Birt: 12.2.2025

Fjöldi umsagna: 3

Drög að frumvarpi til laga

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Breytingar á neyslurými

Niðurstöður

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 6. mars 2025, sbr. hlekk hér fyrir neðan, og mælti ráðherra fyrir því 11. mars 2025. Í greinargerð er fjallað um athugasemdir í umsögnum og viðbrögð við þeim.

Málsefni

Með frumvarpinu er lagt til að heilbrigðisstofnunum og frjálsum félagasamtökkum verði jafnframt heimilt að stofna og reka neyslurými og að heimilt verði að nota vímuefni óháð neysluaðferð.

Nánari upplýsingar

Frumvarp þetta lýtur að breytingum á 2. gr. a laga um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974. Annars vegar að veita heilbrigðisstofnunum og frjálsum félagasamtökum jafnframt heimild til að stofna og reka neyslurými, þ.e. að þessum aðilum verði veitt sama heimild og sveitarfélög hafa nú. Hins vegar að heimila fólki 18 ára og eldra að nota vímuefni í neyslurými óháð neysluaðferð, þ.e. ekki sé því eingöngu heimilt að sprauta efnum í æð, heldur einnig reykja og nota efni um aðrar slímhúðir líkamans. Breytingarnar eru minni háttar en skipta fólk sem notar vímuefni miklu máli.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa lýðheilsu og vísinda

hrn@hrn.is