Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 20.12.2024–31.1.2025

2

Í vinnslu

  • 1.2.2025–

Samráði lokið

Mál nr. S-245/2024

Birt: 20.12.2024

Fjöldi umsagna: 14

Annað

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Leikskólar, grunnskólar, önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála

Aðalnámskrá tónlistarskóla - almennur hluti

Málsefni

Eftir samráð við almenning í haust liggja nú fyrir endurskoðuð drög að almennum hluta aðalnámskrár tónlistarskóla.

Nánari upplýsingar

Samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, skulu tónlistarskólar kenna eftir námskrá sem gefin er út af mennta og barnamálaráðuneyti. Núverandi aðalnámskrá tónlistarskóla er gefin út í tíu heftum og skiptist í almennan hluta aðalnámskrá og níu sérstaka greinahluta.

Drög að breyttum almennum hluta voru lögð til umsagnar í samráðsgátt dagana 20.8.–11.10.2024. Mjög góð þátttaka var í samráðinu og bárust 23 umsagnir um drögin. Unnið hefur verið úr umsögnunum og leggur ráðuneytið nú út til umsagnar endurskoðuð drög.

Helstu breytingar frá fyrri drögum felast í endurskoðaðri umfjöllun um grunnpróf, aldursviðmið, lengd námsáfanga tekin út, æfing gerð að hluta tækniprófs, bætt við vali um prófgerð á framhaldsprófi, málsgrein um trommusett tekin út og bætt við nýjum texta um þverfagleika, nýsköpun námsleiða og leiðsagnarmat og -nám. Þá hefur verið unnið í því að tryggja samfellu í texta og hugtakanotkun.

Almennt snúa breytingar að almennum hluta aðalnámskrárinnar að því að hún sé uppfærð í takt við aðrar gildandi aðalnámskrár og að fyrirkomulagi áfangaprófa þar sem áhersla er lögð á ábyrgð skóla og val nemenda. Gerð er grein fyrir hlutverki og meginmarkmiðum tónlistarskóla, skipan tónlistarnáms, greinanámskrám og skólanámskrám, fjallað um kennslu og kennsluhætti, þætti í hljóðfæra- og tónfræðinámi, námsmat og próf, tengsl heimila og skóla og samvinnu í skólastarfi.

Vinnan við breytingar á almennum hluta aðalnámskrár tónlistarskólanna á sér nokkurn aðdraganda. Haustið 2023 tók mennta- og barnamálaráðuneytið þátt í svæðahaustþingum tónlistarskóla, þar sem m.a. var umræða um framkvæmd aðalnámskrárinnar og hverju væri helst þörf á að breyta. Skipuð var nefnd hagsmunaaðila til að standa að endurskoðuninni og var fyrsta verk hennar að leggja til brýnar breytingar sem þyrfti að gera nú þegar í anda niðurstöðu samráðsins, áður en haldið væri áfram með heildarendurskoðun. Tillagan sem hér er lögð til samráðs endurspeglar þessar brýnu í breytingar.

Hlutverk aðalnámskrár tónlistarskóla er m.a. að hvetja til faglegrar og gagnrýninnar umræðu meðal tónlistarkennara ásamt því að aðalnámskráin er til upplýsingar fyrir nemendur foreldra, sveitarfélög og aðra skóla. Mennta- og barnamálaráðuneytið þakkar fyrir góð viðbrögð í undanfarandi samráði og hvetur þessa aðila og alla þá sem láta sig málið varða til að taka áfram þátt í samráðinu.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (4)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar

mrn@mrn.is