Til umsagnar
18.12.2024–2.1.2025
Í vinnslu
3.1.2025–
Samráði lokið
Mál nr. S-244/2024
Birt: 18.12.2024
Fjöldi umsagna: 1
Drög að reglugerð
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Innviðaráðuneytið birtir til umsagnar drög að reglugerð um breytingu á reglugerð um stærð og þyngd ökutækja, nr. 155/2007 og reglugerð um gerð og búnað ökutækja, nr. 822/2004.
Með drögunum er gert ráð fyrir að heimilt verði að aka hér á landi vörubifreiðum sem eru allt að 12,50 metrar að lengd. Er það að því gefnu að Samgöngustofa fallist á umsókn viðkomandi aðila um aukna lengd, til dæmis, sökum sérstakrar þarfar á lengra ökutæki vegna eðlis flutningastarfsemi, fyrirhuguðum flutningi, skorts á hentugum bifreiðum eða sérstökum ávinningi af aukinni lengd. Frekari skilyrði eru þá tilgreind.
Með því er flutningsaðilum gefinn kostur á aukinni lengd að nánari skilyrðum uppfylltum og með því um leitast við að tryggja að breytingunum muni ekki fylgja neikvæð áhrif á öryggi, afköst, umhverfi eða fjárhagslega hagkvæmni vegakerfisins hverju sinni.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa samgangna
irn@irn.is