Til umsagnar
13.12.2024–13.1.2025
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-241/2024
Birt: 13.12.2024
Fjöldi umsagna: 1
Drög að stefnu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Umhverfisstofnun kynnir stöðumat um úrgangsforvarnir, oft nefnt grænbók, sem er undanfari nýrrar stefnu í málaflokknum. Óskað er eftir umsögnum.
Úrgangsforvarnir (e. waste prevention) gegna lykilhlutverki í hringrásarhagkerfinu. Þær eru meðal skilvirkustu leiða til að bæta auðlindanýtingu og draga úr skaðlegum umhverfisáhrifum vegna úrgangs.
Árið 2016 var fyrsta stefnan um úrgangsforvarnir á Íslandi gefin út undir nafninu Saman gegn sóun. Á haustmánuðum árið 2023 tók umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákvörðun um að endurskoða stefnuna. Ráðuneytið fól Umhverfisstofnun að vinna tillögu að nýrri stefnu sem tæki við af þeirri eldri, í samræmi við lögbundið hlutverk stofnunarinnar. Sú vinna hófst í byrjun árs 2024.
Stöðumatið, sem hér er kynnt, er undanfari nýrrar stefnu um úrgangsforvarnir, og ber Umhverfisstofnun ábyrgð á vinnslu og útgáfu þess. Í stöðumati eru upplýsingar um málaflokkinn og greining á núverandi stöðu hans. Þar má meðal annars finna samantekt á tölfræði sem til er um úrgangsforvarnir og úrgangsmál á Íslandi, sett í samhengi við stöðuna í öðrum löndum. Í vinnuferlinu hefur átt sér stað víðtækt samráð við almenning og hagsmunaaðila, og helstu niðurstöður þess eru birtar í stöðumati. Að lokum er tekið saman yfirlit yfir lykilviðfangsefni framundan og settar fram tillögur sem mynda grunn að nýrri stefnu. Þessar tillögur fela í sér mögulegar leiðir til framkvæmda, framtíðarsýn, áherslur og valkosti.
Úrgangsforvarnir hafa víðtæk áhrif á samfélagið allt. Því er nauðsynlegt að stjórnvöld komi á virku samtali við sem flesta hagaðila til að ná markmiðum nýrrar stefnu. Umhverfisstofnun hvetur alla til að kynna sér efni stöðumatsins og senda inn umsögn.
Eftir að unnið hefur verið úr umsögnum verður endanleg útgáfa stöðumatsins gefin út. Á grundvelli hennar gerir Umhverfisstofnun drög að nýrri stefnu og aðgerðaáætlun sem lögð verður fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Ráðuneytið birtir lokadrög nýrrar stefnu í Samráðsgátt, áður en hún verður endanlega samþykkt. Stefnt er að því að ný stefna um úrgangsforvarnir taki gildi á vordögum 2025 og gildi til næstu 12 ára.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Umhverfisstofnun
birgittasteingrims@ust.is