Til umsagnar
3.–12.12.2024
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-236/2024
Birt: 3.12.2024
Fjöldi umsagna: 1
Drög að stefnu
Innviðaráðuneytið
Sveitarfélög og byggðamál
Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029 hefur verið sett í opið samráðferli þar sem allir geta sent inn ábendingar og tillögur varðandi áætlunina, markmið hennar og innihald.
Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029 felur í sér stöðumat, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir. Sóknaráætlun er fimm ára aðgerðaáætlun og er hluti umfangsmeiri aðgerðaáætlunar Svæðisskipulags Austurlands sem gildir til 2044. Sóknaráætlun tekur til svæðisbundinna áherslna sem taka mið af meginmarkmiðum byggðastefnu, landsskipulagsstefnu, skipulagsáætlunum, menningarstefnu og, eftir atvikum, annarri opinberri stefnumótun.
Formleg vinna við Sóknaráætlun hófst á Haustþingi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, SSA, í september 2024. Þar unnu kjörnir fulltrúar að aðgerðum, byggðum á Svæðisskipulagi Austurlands og þeirri framtíðarsýn sem þar er sett fram. Í framhaldinu voru haldnar fimm vinnustofur með faghópum þar sem tilnefndir voru hagaðilar ýmissa greina, stofnana, fyrirtækja og verkefna. Faghóparnir voru byggðir á grunni sömu hugmyndafræði og fagráð Austurbrúar; að ná þverfaglegri aðkomu aðila á Austurlandi við stefnumótun og áætlanagerð en einnig var sérstaklega leitast við að ná til yngra fólks, íbúa af erlendum uppruna og íbúa allra byggðalaga.
Afrakstur vinnu Haustþings og faghópa var dreginn saman í fyrstu drög Sóknaráætlunar sem kynnt var á opnum fundum í nóvember þar sem öllum íbúum Austurlands og þeim sem töldu sig eiga hagsmuna að gæta, var boðið að taka þátt og leggja til efni eða gera athugasemdir við innihald. Að því loknu var sóknaráætlun sett í samráðsgátt stjórnvalda þar sem allir lögaðilar og einstaklingar gátu sett sínar athugasemdir. Endanleg útgáfu Sóknaráætlunar lýkur í desember 2024 og verður hún birt á vef Austurbrúar, Svæðisskipulags Austurlands og sveitarfélaga landshlutans. Í sóknaráætlun 2025-2029 sem hér fer á eftir er gerð grein fyrir grunnáherslum og framtíðarsýn svæðisskipulags, stöðu Austurlands og lýðfræði árið 2024 í megindráttum. Þá koma kaflarnir fjórir og inniheldur hver þeirra lýsingu á málaflokki, stöðu, talnaefni, SVÓT-greiningu og aðgerðir.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Urður Gunnarsdóttir
urdur@austurbru.is