Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 28.11.–26.12.2024

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-234/2024

Birt: 28.11.2024

Fjöldi umsagna: 0

Drög að stefnu

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Lokaskýrsla starfshóps um stefnu og aðgerðir í skaðaminnkun

Málsefni

Skýrsla þessi er afurð vinnu starfshóps sem heilbrigðiráðherra skipaði og hafði það hlutverk að semja fyrstu stefnu stjórnvalda í skaðaminnkun og leggja til aðgerðaáætlun byggða á henni.

Nánari upplýsingar

Skaðaminnkun er hugmyndafræði sem er tiltölulega ný af nálinni hér á landi og fléttast inn í fjölmarga þætti samfélagsins, þar ber hæst heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og löggæslu. Engin formleg stefna um málefnið er í gildi. Heilbrigðisráðherra ákvað því að hefja skyldi vinnu við gerð fyrstu stefnu stjórnvalda í skaðaminnkun en eftir henni hefur verið kallað, m.a. í umræðum á Alþingi.

Í skýrslu starfshópsins er fjallað um greiningar sem gerðar voru til grundvallar stefnumótunarvinnu, stöðumat m.t.t. skaðaminnkunar á Íslandi, umfjöllun um þróun skaðaminnkunar erlendi sem og þróun vímuefnastefna erlendis og á Íslandi. Þá er lögð fram tillaga að framtíðarsýn, stefnumiði, fjórum meginmarkmiðum og 15 tillögum að aðgerðum í skaðaminnkun á Íslandi.

Skaðaminnkandi stefnur, verkefni og verklag miða að því að draga úr neikvæðum heilsufarslegum, félagslegum og efnahagslegum áhrifum á fólk sem notar lögleg eða ólögleg vímuefni. Í skaðaminnkandi þjónustu er lögð áhersla á að stuðla að jákvæðum breytingum, bæði fyrir þjónustuþega og samfélagið, og skal þjónusta við fólk sem notar vímuefni veitt án fordóma, þvingunar eða mismununar og án þess að forsendan fyrir veittri þjónustu sé að fólk hætti að nota vímuefni

Þjónusta sem byggir á skaðaminnkun gagnast því öllu fólki sem notar vímuefni, fjölskyldum þeirra, nærsamfélagi og samfélaginu í heild. Áherslan er á að draga úr eða fyrirbyggja skaða og neikvæðar afleiðingar af notkun vímuefna fremur en að fyrirbyggja sjálfa notkunina. Þannig hefur skaðaminnkun sterka skírskotun til lýðheilsusjónarmiða og bættra lífsgæða alls fólks sem notar vímuefni. Ávallt skal hafa í forgangi að koma í veg fyrir að fólk láti lífið vegna vímuefnanotkunar.

Þjónusta sem byggir á skaðaminnkun er viðbót við það framboð meðferða við vímuefnanotkun sem þegar er til staðar í samfélaginu sem og viðbót við aðgerðir og inngrip sem miða að því að fyrirbyggja eða draga úr notkun vímuefna. Þekkt er að fjöldi fólks víða um heim notar vímuefni þrátt fyrir ýtrustu viðleitni samfélagsins til að fyrirbyggja upphaf eða áframhaldandi notkun vímuefna.

Í skýrslunni er ekki fjalla um þá heilbrigðisþjónustu sem lýtur að forvörnum, meðferð eða endurhæfingu, enda er það sú heilbrigðisþjónusta sem getur tekið við þegar skaðaminnkun sleppir. Annar starfshópur vinnur að endurskoðun og uppfærslu stefnu í áfengis- og vímuvörnum. Ekki verður um aðskildar stefnur að ræða heldur er markmiðið að um ákveðna víxlverkun verði að ræða og unnið verði að heildstæðri framtíðarsýn í málaflokknum á sviði skaðaminnkunar, meðferðferðar, endurhæfingar og forvarna.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa lýðheilsu og vísinda

hrn@hrn.is