Til umsagnar
15.–30.10.2024
Í vinnslu
31.10.–21.11.2024
Samráði lokið
22.11.2024
Mál nr. S-212/2024
Birt: 15.10.2024
Fjöldi umsagna: 1
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Ein umsögn barst í samráðsgátt um drög að frumvarpi. Þakkað er fyrir veitta umsögn. Ekki verður að framlagningu frumvarpsins þar sem fundum 155. löggjafarþings hefur verið frestað og þinginu lokið.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 og lögum um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla nr. 37/1992.
Lagt til að kveða nánar á um heimildir til að ákveða að tiltekinn hluti af afla skips reiknist ekki til aflamarks skips skv. 9. og 10. mgr. 11. gr. laga um stjórn fiskveiða. Þá er einnig lagt til að hægt verði að verja fé úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins til verkefna fræðslu- og viðbragðsaðila leitunar og björgunar á sjó, auk þess sem nú er til rannsókna og nýsköpunar á sviði sjávarútvegs og til eftirlits með fiskveiðum.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sjávarútvegs
mar@mar.is