Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 11.–25.10.2024

2

Í vinnslu

  • 26.10.2024–14.12.2025

3

Samráði lokið

  • 15.12.2025

Mál nr. S-209/2024

Birt: 11.10.2024

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Breyting á lögum um opinber fjármál (fjármálaáætlun ekki lögð fram á kosningaári)

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust. Gert er ráð fyrir að breytingin verði lögð fram samhliða öðrum breytingum á lögum um opinber fjármál á næstu misserum.

Málsefni

Lögð er til breyting á lögum um opinber fjármál þannig að tillaga til þingsályktunar um fjármálaáætlun til fimm ára verði ekki lögð fram á kosningaári.

Nánari upplýsingar

Í lögum um opinber fjármál nr. 123/2015 segir að leggja skuli fram tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun til næstu fimm ára eigi síðar en 1. apríl ár hvert. Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögunum þannig að þingsálykturartillaga um fjármálaáætlun verði ekki lögð fram á kosningaári en með kosningaári er átt við að fyrir liggur að fjögurra ára kjörtímabili Alþingis verði lokið áður en tímabil nýrrar fjármálaáætlunar rennur upp. Skv. lögum um opinber fjármál þarf að endurskoða forsendur fjármálaáætlunar þegar sett er fram ný fjármálastefna en þegar ný ríkisstjórn tekur við skal hún svo fljótt sem auðið er setja fram fjármálastefnu. Tilefni lagabreytingarinnar er því að skýra hvað skuli gera þegar fyrir liggur að ný ríkisstjórn taki við áður en tímabil fjármálaáætlunar rennur upp. Bæði er ljóst að aðlaga þurfi fjármálaáætlun vegna nýrrar fjármálastefnu en einnig ætti sú ríkisstjórn sem tekur við að kosningum loknum að fá tækifæri til að móta fjármálaáætlun fyrir stjórnartíð sína.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa opinberra fjármála

fjr@fjr.is