Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 11.–25.10.2024

2

Í vinnslu

  • 26.10.2024–19.8.2026

3

Samráði lokið

  • 20.8.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-207/2024

Birt: 11.10.2024

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Einföldun málsmeðferðar laga um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum

Niðurstöður

Ein umsögn barst í gegnum gáttina frá einstaklingi sem taldi rétt að gera breytingar á 2. gr. frumvarpsins til að heimila þjóðaratkvæðagreiðslur um framsal íslenskra ríkisborgara. Öllum lögregluembættum landsins var boðið að senda inn umsagnir um frumvarpsdrögin. Umsagnir bárust frá lögreglunni á Norðurlandi eystra, héraðssaksóknara og ríkissaksóknara. Fundað var með ríkissaksóknara og sendisaksóknara Íslands hjá Eurojust í kjölfar umsagnar frá embættinu auk þess sem fundað var með lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu.

Málsefni

Frumvarpinu er ætlað að einfalda málsmeðferð, gera lögin skilvirkari og samræma orðalag við önnur lög, auk þess að endurspegla þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands vegna alþjóðlegrar réttaraðstoðar

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu er lagt til að ákvæðum laganna verði skipt upp eftir efni þeirra með þeim hætti að almenn ákvæði er að finna á einum stað í upphafi á undan sértækari ákvæðum, sem varða annars vegar framsal og hins vegar alþjóðlega réttaraðstoð í sakamálum. Þá hefur ákvæðum laganna verið gefnar fyrirsagnir til að auka skýrleika og einfalda yfirsýn yfir þau.

Litlar efnislegar breytingar eru gerðar á ákvæðum laganna um framsal sakamanna. Meginbreytingarnar varða tilfærslu á ákvæðum um framsal, til að þau endurspegli betur framvindu framsalsmála. Þannig er ákvæðunum endurraðað til að þau séu í réttri tímaröð miðað við framgang framsalsmála, ef svo mætti að orði komast. Þó þetta sé meginbreytingin þá eru einnig nokkrar efnislegar breytingar. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að framsalsbeiðnir berist á milli viðeigandi ráðuneyta í stað þess að fara eftir diplómatískum leiðum, eins og gildandi lög mæla fyrir um. Með breytingunni er leitast við að einfalda málsmeðferðina eftir því sem unnt er, þ.e. ekki er áskilið að utanríkisþjónustan taki við beiðnum þrátt fyrir að enn verði heimilt að senda þær og taka við þeim eftir diplómatískum leiðum. Í öðru lagi er leitast við að kveða skýrar á um hlutverk hlutaðeigandi embætta sem koma að framsalsmálum á rannsóknarstigi og fyrir dómstólum. Í þriðja lagi er að lagt til að frestur til að óska endurskoðunar dómstóla, í þeim tilvikum sem ákvörðun hefur verið tekin um framsal, verði lengdur úr einum degi í þrjá.

Veigameiri breytingar eru lagðar til á ákvæðum laganna um réttaraðstoð. Meginbreytingarnar eru tvíþættar, annars vegar er lagt til að ríkissaksóknara verði falið miðlægt hlutverk við meðferð réttarbeiðna, bæði þeirra sem eru sendar frá Íslandi og þeirra sem berast frá erlendum yfirvöldum. Hins vegar er lagt til að tiltekin ákvæði frumvarpsins verði lögfest svo hægt verði að fullgilda 2. viðbótarbókun við samning Evrópuráðsins um gagnkvæma réttaraðstoð í sakamálum frá 1959. Ísland undirritaði bókunina í nóvember 2001 en frekari lagabreytinga er þörf til að hægt sé að klára fullgildingarferlið.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa almanna- og réttaröryggis

kristin.jonsd@dmr.is