Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 11.–21.10.2024

2

Í vinnslu

  • 22.10.2024–21.9.2026

3

Samráði lokið

  • 22.9.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-205/2024

Birt: 11.10.2024

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Dómsmálaráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Breyting á kosningalögum

Niðurstöður

Engar athugasemdir bárust við áformin.

Málsefni

Um er að ræða ýmsar breytingar á kosningalögum sem fela í sér lagfæringar á ýmsum atriðum sem betur mega fara auk breytingar á lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka um úthlutun listabókstafa.

Nánari upplýsingar

Ný kosningalög tóku gildi 1. janúar 2022. Með þeim lögum voru sameinuð í einn lagabálk öll lög um almannakosningar. Eftir að lögin tóku gildi hafa á grundvelli hinna nýju laga farið fram kosningar til sveitarstjórna og forsetakjör. Við framkvæmd þessara kosninga hefur komið í ljós ýmislegt sem betur má fara í löggjöfinni og kveða þarf með skýrari hætti á um. Þá er jafnframt rétt að gera breytingar á lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka og færa það verkefni, sem nú er hjá dómsmálaráðuneytinu að úthluta listabókstöfum við alþingiskosningar yfir til landskjörstjórnar en það verkefni á meiri samlegð með störfum landskjörstjórnar en ráðuneytisins.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa réttarfars og stjórnsýslu

dmr@dmr.is