Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 1.–29.10.2024

2

Í vinnslu

  • 30.10.2024–15.4.2025

3

Samráði lokið

  • 16.4.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-196/2024

Birt: 1.10.2024

Fjöldi umsagna: 10

Drög að frumvarpi til laga

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Frumvarp til laga um geislavarnir (heildarendurskoðun)

Niðurstöður

Alls bárust tíu umsagnir um frumvarpsdrögin sem teknar voru til ítarlegrar skoðunar. Gert er ráð fyrir að ný frumvarpsdrög verði birt í samráðsgátt að lokinni yfirferð, enda um að ræða talsverðar breytingar á frumvarpinu.

Málsefni

Kynnt eru til umsagnar drög að frumvarpi til laga um geislavarnir á grundvelli heildarendurskoðunar.

Nánari upplýsingar

Lög um geislavarnir eru að stofni til frá árinu 1985, voru endurskoðuð í heild árið 2002 og voru síðast endurskoðuð að hluta árið 2013. Síðan þá hefur margt breyst sem kallar á endurskoðun laganna.

Eitt helsta markmið endurskoðunarinnar er að færa íslenska löggjöf um geislavarnir og framkvæmd hennar nær öryggisstöðlum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) og löggjöf Evrópska efnahagssvæðinu um geislavarnir og framkvæmd hennar. Það felur einnig í sér betri samræmingu við löggjöf annarra norrænna ríkja og framkvæmd hennar.

Jafnframt koma til breyttar aðstæður innanlands. Þar má m.a. nefna að núgildandi lög taka ekki til fyrirtækja sem framleiða geislatæki, sem og að ný tækni og aukin notkun flókinna geislatækja, einkum í læknisfræði, kallar á auknar kröfur um menntun, þekkingu og hæfni starfsfólks. Þá nær lagaramminn illa utan um fegrunaraðgerðir þar sem beitt er öflugum leysitækjum. Loks kallar aukin umferð kjarnorkuknúinna kafbáta um hafsvæðin umhverfis Ísland á auknar áherslur á viðbúnað og vöktun og sömuleiðis kallar aukin spenna í alþjóðamálum einnig á auknar áherslur vegna kjarnorkuvár.

Hefur heildarendurskoðun gildandi laga um geislavarnir, nr. 44/2002, nú staðið yfir frá árinu 2022, og liggja nú fyrir drög að frumvarpi sem lögð eru hér fram til umsagnar.

Greinar frumvarpsins eru tilbúnar til umsagnar en athugasemdir við einstaka greinar í greinargerðinni eru skemmra á veg komnar og ber að skoða þær með það í huga.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa lýðheilsu og vísinda

hrn@hrn.is