Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 30.9.–28.10.2024

2

Í vinnslu

  • 29.10.2024–15.4.2025

3

Samráði lokið

  • 16.4.2025

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-194/2024

Birt: 30.9.2024

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 (neyslurými)

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust um áformin. Drög að frumvarpi um efnið voru birt í Samráðsgátt 12.-26. febrúar 2025 og frumvarp lagt fram á Alþingi 6. mars 2025.

Málsefni

Áformað er að leggja fram vorið 2025 frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni sem heimilar heilbrigðisstofnunum að opna og reka neyslurými og að í neyslurýmum verði reykrými.

Nánari upplýsingar

Áformað er að leggja fram á vorþingi 2025 frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, í því skyni að heimila heilbrigðisstofnunum að opna og reka neyslurými og að í neyslurýmum verði reykrými.

Fyrirhugað er að breyta 2. gr. a laga um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, sem er um neyslurými, og kveða jafnframt á um að heilbrigðisstofnunum verði einnig heimilt að opna og reka neyslurými, en ekki aðeins sveitarfélögum. Ástæðan er sú að frekari heimildir til reksturs neyslurýmis geti nýst frekar á landsbyggðinni og jafnvel víðar á höfuðborgarsvæðinu, en að svo stöddu er aðeins eitt neyslurými rekið þar, þ.e. í Guðrúnartúni.

Jafnframt er fyrirhugað að breyta sama ákvæði svo notendum neyslurýmis verði jafnframt heimilt að reykja tiltekin efni í neyslurými en ekki aðeins að sprauta þeim í æð, því þekkt er að slíkt leiðir til skaðaminnkunar tengt notkun þeirra efna og kemur jafnvel í veg fyrir ofskömmtun.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa lýðheilsu og vísinda

hrn@hrn.is