Til umsagnar
27.9.–4.10.2024
Í vinnslu
5.10.–16.12.2024
Samráði lokið
17.12.2024
Mál nr. S-193/2024
Birt: 27.9.2024
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Engar umsagnir bárust. Samþykkt sem lög nr. 348/155.
Með frumvarpinu er lagt til að ríkisstjórninni verði heimilt að samþykkja hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í samræmi við ákvörðun stjórnar sjóðsins um hækkun á kvóta aðildarríkja.
Með frumvarpinu er lagt til að ríkisstjórninni verði heimilt að samþykkja hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum úr 321,8 milljónum SDR í 482,7 milljónir SDR. Þá er lagt til að Seðlabanki Íslands leggi fram það fé sem þarf til hækkunar kvótans.
Stjórn og sjóðsráð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa samþykkt niðurstöður sextándu almennu endurskoðunar á kvóta sjóðsins. Niðurstöðurnar fela í sér að kvóti allra aðildarríkja sjóðsins hækka um 50%.Ákvörðunin leiðir til hækkunar á heildarkvóta sjóðsins úr 476,8 ma. SDR í 715,7 ma. SDR. Samþykki íslenska ríkið kvótahækkunina hækkar kvóti Íslands úr 321,8 millj. SDR í 482,7 millj. SDR.
Til þess að tillaga um breytingu á kvóta sjóðsins verði samþykkt þarf stuðning aðildarríkja sem hafa minnst 85% af atkvæðamagni á bak við sig. Að auki verður kvóta aðildarríkis ekki breytt nema með samþykki viðkomandi ríkis. Við nýjustu endurskoðun á kvóta sjóðsins fengu aðildarríkin frest til 15. nóvember 2024 til þess að samþykkja hækkun eigin kvóta.
Kvóti aðildarríkja hefur verið endurskoðaður og stækkaður samtals níu sinnum. Aðrar endurskoðanir hafa ekki leitt til stækkunar kvóta. Ríkisstjórnin getur ekki samþykkt hækkun kvótans nema að hafa til þess lagaheimild. Þegar kvótinn var stækkaður í fyrsta sinn árið 1959 fór ríkisstjórnin með fjárhagsleg samskipti við sjóðinn. Kvóti Íslands var stækkaður í annað sinn árið 1965 og þá var mælt fyrir um það í lögum að Seðlabankinn, þar sem gjaldeyrisvarasjóður Íslands er varðveittur, skyldi vera fjárhagslegur aðili að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir hönd ríkisins. Síðan þá hefur fyrirkomulag kvótahækkunar ávallt verið með þeim hætti að Alþingi hefur með lögum veitt ríkisstjórninni heimild til að samþykkja hækkunina, síðast með lögum nr. 5/2012. Í öllum tilfellum hafa stjórnvöld samþykkt kvótahækkanir sjóðsins og er það nánast algilt fyrir öll aðildarríki hans frá upphafi. Með frumvarpinu er lagt til að ríkisstjórninni verði veitt sambærileg heimild til samþykktar á hækkun á kvóta Íslands í samræmi við sextándu almennu kvótaendurskoðunina og að Seðlabanki Íslands skuli leggja fram það fé sem þarf til hækkunar kvótans. Með samþykkt kvótahækkunarinnar yrði tryggt að Ísland viðhéldi hlutfallslegri stærð kvóta, og þar með atkvæðavægi innan sjóðsins og möguleika á fjármögnun, í kjölfar síðustu aukningar hans.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa efnahagsmála
arnar.axelsson@fjr.is