Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 25.9.–7.10.2024

2

Í vinnslu

  • 8.10.2024–9.2.2026

3

Samráði lokið

  • 10.2.2026

Mál nr. S-191/2024

Birt: 25.9.2024

Fjöldi umsagna: 5

Áform um lagasetningu

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Áform um lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Niðurstöður

Áform um framlagningu frumvarpsins voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 25. september 2024 og var veittur frestur til og með 7. október sama ár til að veita umsagnir um áformin. Alls bárust fimm umsagnir um áformin. Drög að frumvarpinu voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda 11.-25. október 2024 (mál nr. S-208/2024).

Málsefni

Fyrirhugað er að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í heild sinni.

Nánari upplýsingar

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) var samþykkur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 13. desember 2006. Samningurinn var fullgiltur fyrir Íslands hönd árið 2016. Markmið samningsins er að efla, verja og tryggja að allt fatlað fólk njóti til fulls og til jafns við aðra allra mannréttinda og grundvallafrelsis og að efla virðingu fyrir eðlislægri reisn þeirra.

Tilvist sjálfstæðrar mannréttindastofnunar hefur verið talin forsenda þess að hægt sé að lögfesta SRFF, þar sem samningurinn leggur þá skyldu á aðildarríki að slík stofnun sé til staðar. Í ljósi þess að lög um Mannréttindastofnun Íslands voru samþykkt á Alþingi í júní sl. er fyrirhugað lögfesta samninginn í heild sinni.

Með fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur íslenska ríkið þegar skuldbundið sig til þess að koma öllum þeim réttindum sem fram koma í samningnum í framkvæmd. Þá hafa þegar verið gerðar ýmsar breytingar á lögum til að aðlaga þau að samningnum. Samningurinn í heild sinni hefur þó ekki lagagildi hér á landi.

Með lögfestingu samningsins í heild sinni er tryggt að hægt verði að beita samningnum sem fullgildri réttarheimild hér á landi. Samhliða lögfestingu mun einnig koma til skoðunar hvort gera þurfi breytingar á öðrum lögum til að tryggja betur samræmi við samninginn.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (6)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa jafnréttis- og mannréttindamála

frn@frn.is