Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 24.9.–8.10.2024

2

Í vinnslu

  • 9.10.–21.11.2024

3

Samráði lokið

  • 22.11.2024

Mál nr. S-189/2024

Birt: 24.9.2024

Fjöldi umsagna: 5

Drög að frumvarpi til laga

Atvinnuvegaráðuneytið

Sjávarútvegur og fiskeldi

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (gagnsæi og tengdir aðilar)

Niðurstöður

Fimm umsagnir bárust í samráðsgátt um drög að frumvarpi. Þakkað er fyrir veittar umsagnir. Ekki verður að framlagningu frumvarpsins þar sem fundum 155. löggjafarþings hefur verið frestað og þinginu lokið.

Málsefni

Í frumvarpinu er mælt fyrir um skilgreiningu tengdra aðila, eftirlitsúrræði Fiskistofu vegna ákvæða um hámarksaflahlutdeild, aukið gagnsæi, upplýsingagjöf um eignarhald útgerða og tengsl milli þeirra.

Nánari upplýsingar

Í 1. gr. eru ákvæði um skyldu til að veita Fiskistofu upplýsingar um tilgreind atriði þegar aðilaskipti verða að aflahlutdeild. Nánar tiltekið verði skylt að láta Fiskistofu í té upplýsingar um viðskipti eða annan grundvöll aðilaskipta, þ.m.t. hlutaðeigandi aðila og verð sem greitt er fyrir aflahlutdeild, án tillits til þess í hvaða formi greiðslan er. Þá verði upplýsingar um þessi atriði birtar opinberlega að ákveðnu marki, á líkan hátt og viðskipti í kauphöll o.þ.h.

Í 2. gr. eru lagðar til breytingar á skilgreiningu tengdra aðila til að gera skilgreininguna skýrari og nútímavæða hana, sbr. 4. mgr. 13. gr. gildandi laga. Meðal annars er lagt til að hugtakið yfirráð verði skilgreint með sama hætti og í samkeppnislögum. Einnig eru lagðar til afmarkaðar efnis¬breytingar á ákvæðinu sem felast í því að fleiri tegundir fjölskyldutengsla gera einstaklinga að tengdum aðilum en nú gildir, þ.m.t. tengsl systkina og sambúðarfólks. Jafnframt er lagt til nýmæli um að eignarhlutdeild að 20% eða meira sem ein útgerð fer með í annarri hafi þau réttaráhrif að aflahlutdeild hinnar síðarnefndu skuli að hluta lögð saman við aflahlutdeild hinnar fyrrnefndu þegar hámarksaflahlutdeild hennar er reiknuð út. Þótt ekki sé um verulegar breytingar að ræða er engu að síður lagt til með tilliti til meðalhófs að veittur verði rúmur aðlögunarfrestur. Því taki ákvæðið ekki gildi fyrr en 1. janúar 2027 verði það samþykkt.

Í 3. gr. eru lögð til ákvæði um skýrari eftirlitsúrræði Fiskistofu vegna framkvæmdar ákvæða um hámarksaflahlutdeild, þ.m.t. ríkari upplýsingaskyldu útgerða varðandi eignarhald sem og eigna- og stjórnunartengsl milli útgerða. Auknar kröfur verði gerðar í þeim efnum til stórra útgerðarfyrirtækja samkvæmt nánari skilgreiningu. Þá mun Fiskistofa birta afmarkaðar upplýsingar um þessi atriði í þágu gagnsæis.

Í 4.–6. gr. eru ákvæði um málskot til dómstóla, refsiheimild og gildistöku.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (5)

Umsjónaraðili

Skrifstofa sjávarútvegs

mar@mar.is