Til umsagnar
23.9.–14.10.2024
Í vinnslu
15.10.2024–
Samráði lokið
Mál nr. S-186/2024
Birt: 23.9.2024
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á gildandi lögum um siglingavernd sem er ætlað að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna ófullnægjandi innleiðingar Evrópureglna.
Í maí 2023 framkvæmdi ESA úttekt á hafnaraðstöðu í tveimur höfnum á Íslandi. Í kjölfarið var gefin út skýrsla um úttektirnar þar sem innleiðing á efni tiltekinna ákvæða í viðaukum við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 725/2004 frá 31. mars 2004 um að efla vernd skipa og hafnaraðstöðu í lög um siglingavernd voru talin fela í sér frávik.
Frávikið felst í því að í 6. gr. laga um siglingavernd er gert ráð fyrir því að verndarfulltrúi hafnarsvæðis geti framkvæmt áhættumat, en skv. reglugerð (EB) nr. 725/2004 skal áhættumat hafnaraðstöðu aðeins framkvæmt af hlutaðeigandi stjórnvaldi eða viðurkenndum verndaraðila.
Með frumvarpinu er miðað að því að gera úrbætur á þeim hluta laganna sem ESA tilgreinir sem frávik. Breytingarnar eru í samræmi við þá framkvæmd sem Samgöngustofa viðhefur við gerð áhættumats og verndaráætlunar.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa samgangna
irn@irn.is