Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 17.9.–1.10.2024

2

Í vinnslu

  • 2.–1.10.2024

3

Samráði lokið

  • 2.10.2024

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-182/2024

Birt: 17.9.2024

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Drög að frumvarpi um greiðslur yfir landamæri í evrum

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust

Málsefni

Frumvarpið varðar Innleiðingu á reglugerð (ESB) 2021/1230 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu.

Nánari upplýsingar

Með reglugerð (ESB) 2021/1230 eru sameinuð með kerfisbindingu (e. codification) ákvæði reglugerðar (EB) nr. 924/2009 frá 16. september 2009 um greiðslur yfir landamæri í Bandalaginu og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 2560/2001, tiltekin ákvæði reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 og ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/518 frá 19. mars 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 924/2009 að því er varðar tiltekin gjöld á greiðslur milli landa innan Sambandsins og gjaldskrárbreytingar. Reglugerð (ESB) 2019/518 hafði ekki verið tekin upp í EES-samninginn þegar ákveðið var að endurútgefa reglugerð (EB) 924/2009 með kerfisbindingu.

Reglugerðir (EB) nr. 924/2009 og (ESB) nr. 260/2012 voru innleiddar í íslenskan rétt með lögum um greiðslur yfir landamæri í evrum, nr. 78/2014. Í greinargerð með frumvarpi til laganna segir að markmið reglugerðanna sé að veita borgurum og fyrirtækjum samræmda, örugga, notendavæna og áreiðanlega greiðsluþjónustu í evrum á samkeppnishæfu verði innan EES, jafnframt því að tryggja að gjöld vegna greiðslna í evrum yfir landamæri ríkja innan EES séu hliðstæð því sem gerist vegna greiðslna í evrum innanlands. Með reglugerð (ESB) 2019/518 voru gerðar breytingar á reglugerð (EB) nr. 924/2009 þar sem talið var nauðsynlegt að grípa til frekari ráðstafana og rýmka meginregluna um jöfn gjöld á greiðslum í evrum yfir landamæri þannig að hún væri hliðstæð því sem gerðist í innlendum greiðslum í gjaldmiðlum aðildarríkja utan evrusvæðisins. Með breytingargerðinni var einnig aukið gagnsæi vegna umreiknings gjaldmiðils í tengslum við kortatengdar greiðslur og millifærslu fjármuna.

Tilgangur með framlagningu þessa frumvarps er að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar (ESB) 2021/1230 og tryggja ákvæðum reglugerðar (ESB) nr. 260/2012 áframhaldandi lagagildi. Lagt er til að reglugerð (ESB) 2021/1230 verði tekin upp í íslenskan rétt með svokallaðri tilvísunaraðferð og þá að fullu innleidd sem slík samkvæmt orðanna hljóðan í samræmi við a-lið 7. gr. EES-samningsins, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

steinar.steinarsson@fjr.is