Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 16.–30.9.2024

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-178/2024

Birt: 16.9.2024

Fjöldi umsagna: 1

Annað

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fjölskyldumál

Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda

Málsefni

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið leggur fram til samráðs stefnu til 15 ára og framkvæmdaáætlun til 4 ára í málefnum innflytjenda. Stefnan var áður birt í Hvítbók en framkvæmdaáætlun er fyrst birt nú.

Nánari upplýsingar

Félags- og vinnumarkaðsráðherra hyggst á haustþingi leggja fram tillögu til þingsályktunar um stefnu í málefnum innflytjenda til fimmtán ára ásamt fjögurra ára framkvæmdaáætlun til að fylgja eftir markmiðum hennar.

Í stefnunni kemur í fyrsta sinn fram framtíðarsýn stjórnvalda og meginmarkmið til næstu fimmtán ára. Stefnan er unnin í breiðu samráði við haghafa og almenning með sérstakri áherslu á aðkomu innflytjenda sjálfra. Alls hafa um 550 einstaklingar komið að vinnunni og er hvítbókin niðurstaða þessa breiða samráðs. Stefnunni er ætlað að vera leiðarljós til framtíðar og styrkja grundvöll ákvarðana um þau málefni sem snerta líf og velferð innflytjenda hér á landi. Hún leggur grunn að samábyrgð samfélagsins, jafnt innlendra sem innflytjenda, á mótun inngildandi samfélags.

Framkvæmdaáætlun er unnin að tillögum innflytjendaráðs í samráði við ráðuneyti og stofnanir sem bera ábyrgð á aðgerðum áætlunarinnar. Með aðgerðum framkvæmdaáætlunar er tekist á við brýn verkefni til að tryggja framgang stefnunnar. Áætlunin er fyrsta skref af mörgum til að ná fram langtíma áhrifum og því framtíðar samfélagi sem birtist í stefnunni.

Í auðlesinni útgáfu er aðeins um að ræða framkvæmdaáætlunina með hlekkjum á auðlesna útgáfu stefnunnar sem áður var birt.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (73)

Umsjónaraðili

Skrifstofa vinnumarkaðar

frn@frn.is