Til umsagnar
10.9.–1.10.2024
Í vinnslu
2.–21.10.2024
Samráði lokið
22.10.2024
Mál nr. S-176/2024
Birt: 10.9.2024
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Heilbrigðisráðuneytið
Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa
Engar athugasemdir bárust við áform. Drög að frumvarpi til laganna hafa verið birt í samráðsgátt.
Áformað er að fella brott ákvæði um sjúkrahjálp sem veitt eru í kjölfar slyss sem veldur óvinnufærni. Heilbrigðiskostnaður yrði greiddur skv. almennri greiðsluþátttöku.
Ráðuneytið áformar að fella brott 10. gr. laga um slysatryggingar almannatrygginga (sjúkrahjálp). Valdi bótaskylt slys sjúkleika og vinnutjóni í minnist 10 daga skal, samkvæmt ákvæðinu, greiða nauðsynlegan kostnað vegna lækningar hins slasaða og tjóns á gervilimum eða hjálpartækjum. Eru lyf, gervilimir eða svipuð hjálpartæki og sjúkraþjálfun t.a.m. greidd að fullu.
Með frumvarpinu er leitast við að draga úr tímafrekri vinnu við umsýslu Sjúkratrygginga vegna umsókna um tiltölulega lágar bótafjárhæðir. Þá hefur greiðsluþátttaka hins opinbera tekið miklum breytingum frá því sjúkrahjálp tók gildi og stæði hið opinbera straum af verulegum hluta þess kostnaðar sem um ræðir í gegnum almenna greiðsluþátttöku. Upplýsingar sem ráðuneytið aflaði bera með sér að flestir sjúkratryggðir hafi snertingu fyrir greiðsluþátttökukerfið og myndu þannig greiða lægri fjárhæð fyrir heilbrigðisþjónustu en sem nemur hámarksgjald (um 35 þús. kr. á mánuði) þann mánuð sem slys á sér stað. Ferðakostnaður yrði t.d. greiddur að fullu og styrkir vegna ýmissa hjálpartækja nema 70% af kostnaði. Frekari upplýsingar eru í áformaskjali.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
hrn@hrn.is