Til umsagnar
9.–23.9.2024
Í vinnslu
24.9.–21.11.2024
Samráði lokið
22.11.2024
Mál nr. S-174/2024
Birt: 9.9.2024
Fjöldi umsagna: 5
Áform um lagasetningu
Atvinnuvegaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Fimm umsagnir bárust í samráðsgátt um drög að frumvarpi. Þakkað er fyrir veittar umsagnir. Ekki verður að framlagningu frumvarpsins þar sem fundum 155. löggjafarþings hefur verið frestað og þinginu lokið.
Hugtök og ferlar hvað varðar varðveislu viðkvæmra hafsvæða hafa þróast mikið á undanförnum árum. Lagt er til að uppfæra þau hugtök og ferla hvað varðar ákvarðanir um verndarsvæði í hafi.
Fjallað er um varðveislu viðkvæmra hafsvæða og friðunarsvæði í hafi fyrir veiðum og veiðarfærum í 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Frumvarpið miðar að því að styrkja lagagrunn fyrir setningu reglugerða er varðar verndarsvæði í hafi, einkum er varðar samræmi við stefnumótun Íslands og fylgni við alþjóðlega þróun um verndun hafsvæða. Auk þess þarf að skoða hvort rétt sé að hafa heimild í lögum til að takmarka aðrar aðgerðir eða framkvæmdir sem geta haft neikvæð áhrif á nytjastofna á grunni vistkerfisnálgunar. Þá er rétt að uppfæra hugtök og skilgreina betur hvað séu verndarsvæði í hafi. Rétt er að skýra hlutverk Hafrannsóknastofnunar og annarra stofnanna hvað varðar tilnefningu verndarsvæða í hafi.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa sjávarútvegs
mar@mar.is