Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 30.8.–16.9.2024

Í vinnslu

Samráði lokið

Mál nr. S-169/2024

Birt: 30.8.2024

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Frumvarp um umhverfismat framkvæmda og áætlana - afhúðun

Málsefni

Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Nánari upplýsingar

Umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Tilefni frumvarpsins er skýrsla um það hvort svokölluð gullhúðun hafi átt sér stað á málefnasviði ráðuneytisins á tímabilinu 2010-2022 en skýrslan var birt í janúar á þessu ári. Eins og fram kemur í skýrslunni „Skýrsla um innleiðingu EES-gerða í landsrétt“ hefur „gullhúðun“ átt sér stað á málefnasviði umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytisins, þ.e. að gerðar séu ríkari kröfur í innleiðingarlöggjöf en nauðsynlegt er á grundvelli lágmarkskrafna þeirra EES-gerða sem verið er að innleiða.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra boðaði í umræðum á Alþingi þann 12. mars 2024 að brugðist yrði við niðurstöðu skýrslunnar og að sett yrði af stað vinna við að endurskoða innleiðingu á EES-gerðum í löggjöf um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana, með það að markmiði að færa löggjöfina að þeim lágmarkskröfum sem gerðar eru í EES-gerðum. Frumvarpið, sem er nú sett í samráðsgátt, er afrakstur þeirrar vinnu.

Frumvarpið felur í sér annars vegar breytingu á ákvæði 2. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana að því er varðar umhverfismat skipulagsáætlana og hins vegar ákvæðum í 1. viðauka laganna að því er varðar lengd og þvermál leiðslna til flutnings á nánar tilgreindum efnum/efnasamböndum.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (0)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar

urn@urn.is