Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 22.8.–5.9.2024

2

Í vinnslu

  • 6.9.2024–22.7.2026

3

Samráði lokið

  • 23.7.2026

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-163/2024

Birt: 22.8.2024

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Heilbrigðisráðuneytið

Sjúkrahúsþjónusta

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu (Stjórn Sjúkrahússins á Akureyri)

Niðurstöður

Frumvarp var ekki lagt fram á Alþingi.

Málsefni

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar þess efnis að skipuð verði fagleg stjórn yfir Sjúkrahúsinu á Akureyri. Breytingarnar eru í samræmi við frumvarp stjórnar Landspítala sem samþykkt var 2022.

Nánari upplýsingar

Markmið frumvarpsins er að styrkja stjórn Sjúkrahússins á Akureyri með því að veita lagastoð fyrir því að stjórn verði skipuð yfir spítalann sem gegni því hlutverki að tryggja frekari faglegan rekstur spítalans. Við gerð frumvarpsins var litið til reynslu síðustu ára af stjórn Landspítala og stjórnskipulags sjúkrahúsa á hinum Norðurlöndunum.

Helstu nýmæli sem felast í frumvarpinu eru að stjórn verði sett á stofn fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri. Stjórninni verði ætlað að eiga ríkt samstarf við forstjóra stofnunarinnar sem og ráðherra heilbrigðismála um stefnur og rekstur stofnunarinnar. Stjórninni er ætlað að marka stofnuninni langtímastefnu í samræmi við stefnumörkun ráðherra en einnig að staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun hennar og fjárhagsáætlun. Í þessu felst enn fremur að stjórninni sé ætlað að bera ábyrgð á framkvæmd innra eftirlits innan Sjúkrahússins á Akureyri með reglubundnum aðgerðum og ráðstöfunum til að stuðla að hagkvæmni í rekstri, öryggi fjármuna, áreiðaleika upplýsinga og að markmiðum starfseminnar sé náð.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (0)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa heilbrigðisþjónustu

hrn@hrn.is