Til umsagnar
19.8.–4.9.2024
Í vinnslu
5.2024–28.9.2026
Samráði lokið
29.9.2026
Mál nr. S-158/2024
Birt: 19.8.2024
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Dómstólar
Málið er til skoðunar í dómsmálaráðuneytinu.
Áformað er að gera breytingar á þeim ákvæðum laga um dómstóla, nr. 50/2016, er varða leyfi dómara.
Samkvæmt 3. mgr. 18. gr. laga um dómstóla, nr. 50/2016, er heimilt að veita hæstaréttardómara leyfi frá störfum að eigin ósk í allt að sex ár til þess að hann geti tekið sæti í alþjóðlegum dómstóli eða starfi við alþjóðastofnun. Skal embættið þá auglýst til setningar á leyfistímanum. Hliðstæð ákvæði að því að varðar landsréttardómara og héraðsdómara er að finna í 3. mgr. 26. gr. og 3. mgr. 35. gr. laganna en þeim má að auki veita leyfi til allt að sex ára til þess að þeir getið þegið setningu á æðra dómstigi á Íslandi. Ákvæðin eiga rætur sínar að rekja til eldri laga um dómstóla, nr. 15/1998, en í greinargerð til þeirra laga kemur fram að þau séu einkum reist á því að æskilegt geti verið fyrir íslenska dómstóla að dómarar fari héðan til tímabundinna starfa hjá alþjóðlegum dómstólum eða stofnunum og færi hingað aftur að loknum ráðningartímanum mikilsverða reynslu, bæði af viðkomandi málaflokki og vinnubrögðum.
Nýleg reynsla hefur þó sýnt að leyfi sem veitt er á þessum grunni til sex ára getur skapað ýmis vandkvæði innan dómskerfisins og meðal annars leitt til tíðra setninga dómara. Tíðar setningar innan dómskerfisins eru ekki æskilegar með tilliti sjálfstæðis dómstóla auk þess sem þær raska stöðugleika innan þess kerfis. Slíkt hefur jafnframt aukinn kostnað í för með sér vegna tíðra auglýsinga og eftirfarandi málsmeðferðar við undirbúning ákvörðunar um setningu. Þar sem auglýsa þarf lausar stöður til setningar aukast jafnframt líkur á dómstólar verði oftar undirmannaðir tímabundið.
Áformaðar eru breytingar á lögum í því augnamiði að leyfi dómara til lengri tíma raski ekki stöðugleika innan dómskerfisins eða dragi úr sjálfstæði dómara.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa réttarfars og stjórnsýslu
dmr@dmr.is