Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 6.8.–3.9.2024

2

Í vinnslu

  • 4.9.–9.10.2024

3

Samráði lokið

  • 10.10.2024

Mál nr. S-153/2024

Birt: 6.8.2024

Fjöldi umsagna: 1

Áform um lagasetningu

Heilbrigðisráðuneytið

Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007 (fækkun nefnda)

Niðurstöður

Samráði um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007 (fækkun nefnda), mál nr. S-170/2024 í samráðsgátt, er lokið. Það barst ein umsögn. Samráðið skilaði drögum að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu (niðurlagning hæfnisnefnda), mál nr. S-170/2024 í samráðsgátt.

Málsefni

Kynnt eru áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, um fækkun nefnda.

Nánari upplýsingar

Í lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, er kveðið á um skipan og hlutverk þriggja nefnda sem falið hefur verið að meta faglega hæfni umsækjenda um stöður framkvæmdastjóra lækninga og stjórnenda lækninga, framkvæmdastjóra hjúkrunar og forstjóra heilbrigðisstofnana. Annars vegar er um að ræða nefndir sem leggja mat á faglega hæfni millistjórnenda á heilbrigðisstofnunum, þ.e. framkvæmdastjóra og stjórnenda lækninga og framkvæmdastjóra hjúkrunar. Fáheyrt er að kveðið sé á um fastar ráðherraskipaðar hæfnisnefndir í lögum vegna umsókna um störf millistjórnenda stofnana ríkisins. Hins vegar er um að ræða nefnd sem leggur mat á faglega hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana og gildir það

jafnframt um embætti landlæknis, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu.

Í 5. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, er kveðið á um að ráðherra skipi forstöðumann stofnunar og eftir atvikum aðra embættismenn er við hana starfa, en að forstöðumaður ráði í önnur störf hjá henni. Í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því sem varð að lögum nr. 70/1996 segir að þetta hafi verið gert með það fyrir augum að auka sjálfstæði forstöðumanna eins og markvisst hafi verið stefnt að með frumvarpinu. Til að tryggja að forstöðumenn njóti sjálfræðis hvað varðar ráðningar millistjórnenda hjá þeirri stofnun sem þeir stýra og til að gæta samræmis við framkvæmd annarra ríkisstofnanna, er því lagt til í frumvarpinu, að horfið verði frá því lögbundna fyrirkomulagi að ráðherraskipaðar hæfnisnefndir meti störf faglegra stjórnenda lækninga og hjúkrunar. Eftir sem áður getur forstjóri skipað slíka hæfisnefnd ad hoc ef talið er tilefni til.

Með 8. gr. laga nr. 130/2016 var bætt við ákvæði við lög nr. 70/1996 ákvæði þess efnis að hlutaðeigandi ráðherra eða stjórn gæti falið sérstakri hæfnisnefnd þriggja manna að meta hæfni umsækjenda um starf forstöðumanns og væri niðurstaða hennar ráðgefandi, sbr. 39. gr. b laganna. Með umræddum lagabreytingum hefur því verið komið á fót almennu fyrirkomulagi hæfnisnefnda við skipun í embætti forstöðumanna ríkisstofnanna og því ekki sama þörf fyrir hendi að sérstakt ákvæði sé í lögum varðandi forstjóra heilbrigðisstofnanna. Þá hefur þótt skjóta skökku við að hæfnisnefnd skv. lögum um heilbrigðisþjónustu er föst, þ.e. í henni sitja ætíð sömu nefndarmennirnir í fimm ár í senn en hæfnisnefndir fyrir aðra forstöðumenn, þ.m.t.

undirstofnanna heilbrigðisráðuneytisins, eru ad hoc, þ.e. skipaðar sérstaklega fyrir hvert mál.

Með frumvarpinu er því lagt til að samræma ferli við skipun í embætti forstöðumanna ríkisins og ráðningar í önnur stjórnunarstörf, þannig að ekki gildi sérreglur varðandi heilbrigðisstofnanir. Jafnframt er stefnt að því að einfalda ferli við ráðningar í störf millistjórnenda heilbrigðisstofnana og veita forstjórum þeirra sama svigrúm við val á aðferðum við mat á hæfni og forstjórar annarra stofnana hafa. Við það mun lögbundnum föstum nefndum á málefnasviði ráðherra jafnframt fækka.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (11)

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stjórnsýslu

gudridur.bolladottir@hrn.is